Lífið

Stórtónleikar á Nasa

Dr. Mister & Mr. Handsome
Dr. Mister & Mr. Handsome

Cod Music og Forma, samtök átröskunarsjúklinga ætla að efna til stórtónleika á Nasa laugardaginn 23. september næstkomandi. Tónleikarnir verða endapunkturinn á gríðarlega mikilli dagskrá dagsins Ímynd 2006 sem Forma stendur fyrir í Borgarleikhúsinu og á Nasa.

 

Listamennirnir sem koma fram eru, Dr. Mister & Mr. Handsome, Fræ, Wulfgang, Lay Low, Benny Crespo's Gang, Toggi og Helgi Valur.

 

Dr. Mister & Mr. Handsome hafa nú þegar stimplað sig inn sem ein heitasta hljómsveitin á Íslandi í dag, en platan þeirra, Dirty Slutty Hooker Money hefur verið að seljast gríðarlega vel á undanförnum vikum. Fræ komu virkilega ferskir inn í tónlistarbransann á þessu ári og gáfu í sumar út sína fyrstu plötu, Eyðileggðu þig smá, sem hefur fengið mjög góðar viðtökur og hafa lögin Freðinn fáviti og Dramatísk rómantík hafa fengið mikla spilun í útvarpi.



Wulfgang

Wulfgang eru þessa dagana að leggja lokahönd á sína fyrstu plötu sem verður gefin út undir merkjum Cod Music, en þeir áttu í sumar einn vinsælasta slagarann á rokkstöðvum landsins, Machinery. Fyrsta plata Lay Low, Please Don't Hate Me mun koma út núna um miðjan október, en þessi unga tónlistarkona hefur fengið ótrúlegar viðtökur án þess að hafa gefið út plötu.

Benny Crespo's Gang er án efa eitt besta tónleikaband sem til er á Íslandi í dag, en sveitin er að leggja lokahendur á sína fyrstu breiðskífu, en útgáfudagsetning hefur ekki enn verið staðfest. Toggi mun gefa út sína fyrstu plötu hjá Senu núna á næstu dögum, en gagnrýnendur hafa lofað þessa plötu hásterkt. En platan ber nafnið Puppy.

 

 

Lay Low

Helga Val þekkja nú flestir tónlistaráhugamenn en hann hefur með sínu ótrúlega fallega söng stimplað sig rækilega inn á íslenska tónlistarmarkaðinn í gegnum tíðina.

 

Það er því alveg ljóst að þessir tónleikar eru eitthvað sem engin áhugamaður um íslenska tónlist má láta fram hjá sér fara, en eins og áður sagði ætla Cod Music og Forma að bjóða öllum sem hafa áhuga að mæta og bera þessa stórefnilegu listamenn augum.

 

Húsið opnar kl. 21:00 og er aðgangur ókeypis. Aldurstakmark er 20 ár.

 

Heimasíða COD Music: www.cod.is

Heimasíða Forma: www.forma.go.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.