Vextir af íbúðalánum hækka 10. júlí 2006 17:02
Mánaðarleg afborgun af þriggja herbergja íbúð í Reykjavík var meira en helmingi hærri í maí síðastliðnum en fyrir tæpum tveimur árum. Þar ræður almenn hækkun fasteignaverðs mestu. Vextir á íbúðalánum eru nú lægstir 4,95 prósent. Þegar samkeppni bankanna á fasteignamarkaðnum hófst hins vegar fyrir tæpum tveimur árum voru vextirnir lægstir 4,15 prósent. Samtök atvinnulífsins birtu á vefsíðu sinni fyrir helgi dæmi um greiðslubyrði við kaup á þriggja herbergja 85 fermetra íbúð í Grafarholti í Reykjavík, annars vegar miðað við að íbúðin hafi verið keypt í maí síðastliðnum, og hins vegar ef fjárfest hefði verið í sams konar íbúð í nóvember 2004. Algengt verð slíkra íbúða í vor var um tuttugu milljónir króna. Gert er ráð fyrir 80 prósenta jafngreiðsluláni til 40 ára með mánaðarlegum greiðslum. Lánsfjárhæðin í er því 16 milljónir króna. Miðað við núverandi vexti nemur greiðslubyrðin tæpum 77 þúsund krónum. Hefði íbúðin hins vegar verið keypt fyrir tveimur árum, þegar allir helstu markaðsaðilar voru komnir allt niður í fjögurra komma fimmtán prósenta vexti, má ætla að verð hennar hefði verið tæplega 14 og hálf milljón króna, miðað við vísitölu íbúðaverðs. Mánaðarleg afborgun af 80 prósenta láni hefði þá orðið tæplega 50 þúsund krónur. Ef vextir hefðu verið 4,95 prósent, eins og nú, en fasteignaverð verið það sama og í nóvember 2004, yrði mánaðarleg greiðslubyrði tæplega 55 þúsund og 600 krónur. Samtök atvinnulífsins benda einnig á að þar sem aukin greiðslubyrði er aðeins að litlu leyti vegna hækkunar vaxta, en að mestu vegna hærra fasteignaverðs, hækka vaxtabætur lítið og þurfa launin því að mestu að standa undir aukinni greiðslubyrði þeirra sem nú eru að kaupa sér íbúð.
Fréttir Innlent Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Sjá meira