Of margir nota ekki belti 4. júlí 2006 18:45
Það að farþegi í aftursæti notaði ekki bílbelti er talið hafa átt þátt í að tveir biðu bana í bílslysi á síðasta ári að mati Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík segir lögreglumenn um allt land daglega sjá mikilvægi bílbeltanotkunar. Af þeim sem fórust í umferðaslysum í fyrra notuðu 73 prósent bílbelti en 27 prósent notuðu ekki bílbelti. Er þetta mun hærra hlutfall en fjöldi þeirra sem almennt nota ekki bílbelti. Rannsóknarnefndin telur að þrír hefðu lifað af slysin hefðu þeir notað bílbelti. Í einu tilviki kastaðist bílbeltalaus farþegi í aftursæti á farþega í framsæti, sem notaði bílbelti, líklega með þeim afleiðingum að báðir fórust að mati nefndarinnar. Árni Þór Sigmundsson segir bílinn sem fjórmenningarnir voru í hafa verið á lítilli ferð þannig að ef bílbelti hefðu verið notuð hefðu allir átt að sleppa lítið slasaðir úr slysinu. Ökumaður kastaðist úr bíl sínum þegar árekstur tveggja bíla varð á Vesturlandsvegi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Sá er ekki talin hafa verið í bílbelti. Tvær stúlkur sem slösuðust alvarlega í umferðarslysi á sunnudagsmorgun eru á batavegi, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu. Önnur stúlknanna er komin úr öndunarvél. Ein stúlka lést í slysinu. Þrír af þeim fimm sem í bílnum voru notuðu ekki bílbelti. Talið er að bjarga hefði mátt fjörtíu mannslífum í umferðinni á Íslandi á síðust sex árum ef notuð hefðu verið bílbelti. Einar Magnús Magnússon, hjá Umferðarstofu, segir því miður enn fámennan hóp fólks trúa því, að við vissar aðstæður, borgi sig ekki að vera með bílbelti eins og þegar ekið er um fjallvegi. Hann segir þarna um mikinn misskilning og vanþekkingu á eðli umferðarslysa að ræða.
Mest lesið Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Erlent Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Innlent „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ Innlent Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Innlent Fleiri fréttir Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Sjá meira
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent