Innlent

Öllum kríueggjum rænt af friðlýstu svæði

Öll kría er horfin úr Dyrhólaey.
Öll kría er horfin úr Dyrhólaey. MYND/STEFÁN
Öllum kríueggjum í Dyrhólaey var rænt af friðlýstu svæði í síðustu viku og er öll kría farin úr eyjunni, að því er Morgunblaðið hefur eftir Þorsteini Gunnarssyni bónda í Vatnsskarðshólum. Þorsteinn telur að þetta hafi gerst í síðustu viku og hafi stórum bil verið ekið utan vegar. Lögreglan í Vík í Mýrdal hefur málið til rannsóknar, en síðast þegar eggjum var rænt í Dyrhólaey, fyrir all nokkrum árum, verpti engin kría þar í nokkur ár á eftir.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×