Viðræður hefjast að nýju um Landsvirkjun 3. júlí 2006 19:05
Viðræður um kaup ríkisins á eignarhlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun eru að hefjast að nýju. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri vonast til að borgin selji fyrir haustið. Viðræður um að ríkið eignist hluti sveitarfélaganna tveggja í Landsvirkjun hófust formlega fyrir hálfu öðru ári en þeim var hætt í byrjun þessa árs. Nú hefur verið ákveðið að taka upp þráðinn að nýju. Vilhjálmur segir að það gangi ekki lengur í breyttu samkeppnisumhverfi á raforkumarkaði að Reykjavíkurborg sé 95% eignaraðili að Orkuveitu Reykjavíkur og 45% eignaraðili að Landsvirkjun. Óeðlilegt sé að borgin sé báðu megin við borðið. Þessvegna eigi hún að selja og nýta fjármunina til að lækka skuldir. Verðmiði upp á 60 milljarða króna var kominn á Landsvirkjun í heild þegar upp úr viðræðum slitnaði í vetur. Vilhjálmur telur unnt að ganga til samninga á grundvelli þess tilboðs og í raun hafi lítið borið á milli. Það hafi hins vegar legið ljóst fyrir að ekki var samstaða innan meirihluta R-listans. Jafnvel þótt borgin hefði fengið helmingi hærra tilboð frá ríkinu ætluðu vinstri grænir aldrei að taka þátt í sölu fyrirtækisins. Þannig að viðræður sem fóru fram í tæpt ár voru bara sýndarviðræður. Vilhjálmur vonast til að viðræðum ljúki sem fyrst og helst fyrir haustið.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Erlent Fleiri fréttir Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sjá meira