Innlent

Samgöngunefnd Alþingis boðuð til aukafundar vegna niðurskurðar í vegamálum

Formaður samgöngunefndar Alþingis, sjálfstæðismaðurinn Guðmundur Hallvarðsson, segir óskynsamlegt að fresta vegagerð í dreifbýli. Hann hefur ákveðið að kalla þingnefndina saman til aukafundar vegna málsins síðar í vikunni, að ósk stjórnarandstæðinga.

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar í síðustu viku, að stöðva öll frekari útboð í vegagerð um óákveðinn tíma, mætir harðri andstöðu og hafa þingmenn, bæði Frjálslynda flokksins og Samfylkingarinnar, krafist þess að samgöngunefnd þingsins verði kvödd saman. Mun hún funda næstkomandi fimmtudag. Fyrir nefndina verða kallaðir vegamálastjóri, flugmálastjóri, siglingamálastjóri og starfsmenn samgönguráðuneytis.

Sveitarstjórnarmenn, bæði á Vestfjörðum og norðausturland,i hafa sérstaklega mótmælt því að niðurskurðurinn skuli beinast að þeim svæðum enda sé þenslan ekki þar. Guðmundur tekur undir þau sjónarmið og telur óskynsamlegt að fresta verkefnum á þeim svæðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×