Stýrir samkomum um hlutverk trúar 22. september 2006 15:30
Samkomur undir yfirskriftinni Ein trú, tveir heimar hófust í Dómkirkjunni í gær og halda áfram í dag. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur leiðir samkomurnar, en markmið þeirra er að hvetja kristið fólk til að virkja og þroska trú sína. Jakob segir samkomurnar höfða til þeirra sem eigi trú. Þær eiga að vekja fólk til umhugsunar um hvaða gagn það gerir sér af trú sinni og hvort það geti ekki virkjað hana betur í lífinu, segir hann. Meðal þess sem verður til umfjöllunar er starf kristniboða og kirkja í þriðja heiminum og árangur af Hjálparstarfi kirkjunnar. Séra Helgi Hróbjartsson verður ræðumaður bæði kvöldin, en hann hefur mikla reynslu af kristniboði og hjálparstarfi. Sjáir þú að trúin sé blessun í lífi þínu ættirðu að deila með þér til annarra manna nær og fjær, bæði í orði og verki, segir Jakob. Hann segir samkomurnar einnig fela í sér áskorun til fólks um að taka trú sína alvarlegar og taka ábyrgð á henni eins og öðrum þáttum í tilverunni. Jakob segir afar áríðandi að trúað fólk geri upp við sig til hvers það vilji hafa trúna í þjóðfélaginu. Trúin styrkist víða í þriðja heiminum, en er að missa tök sín á þjóðfélagi okkar, útskýrir Jakob. Trú er augljóslega virk í samfélagi þjóðanna; hún skiptir miklu máli í Bandaríkjunum, mesta stórveldi heims, og eins í múslimaheiminum, segir hann og bætir við: Höfum við ekkert til málanna að leggja í þessu sambandi? Aðspurður hvort samkomur af þessu tagi hafi áður verið haldnar á vegum Dómkirkjunnar segir Jakob svo ekki vera. Við höfum reynt ýmislegt í þessu sama skyni áður, en við lifum í nýjum skilningi á hverjum tíma. Þessar samkomur eru sprottnar upp úr heimsmynd dagsins í dag, segir Jakob.
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira