Hlaupabretti og sundlaug fyrir hross og hunda 25. ágúst 2006 11:45 Hestur á hlaupabretti Helgi Leifur og Arna konan hans ætla að bjóða upp á nýstárlega aðferð við að þjálfa hross og hesta.
Helgi Leifur Sigmarsson tamningamaður opnar innan skamms þjálfunar- og endurhæfingarstöð fyrir hross og hunda í hesthúsahverfinu í Víðidal. Helgi Leifur ætlar að bjóða upp á nýjungar við þjálfun dýranna en meðal þess sem hann býður upp á er sundlaug og hlaupabretti, nokkurs konar hesta-spa en án leirbaðanna. "Ég hef séð svona stöð erlendis og hef ég kynnst ýmsum veikum hestum og hundum á lífsleiðinni," segir Helgi Leifur spurður um hvernig hugmyndin að stöðinni hafi kviknað. Tamningamaðurinn segir sundlaugina og hlaupabrettið vera viðbót við þau þjálfunarkerfi sem hann hefur notast við síðustu ár. "Jóhann R. Skúlason, heimsmeistari í tölti, þjálfar hesta í sundlaug með góðum árangri og sömu sögu er að segja af Magnúsi Skúlasyni og konu hans, en þau unnu alla skeiðflokkana á síðasta heimsmeistaramóti í Svíþjóð." Helgi Leifur, sem rekur stöðina ásamt konu sinni, Örnu Rúnarsdóttur, segir sundlaugina gera mikið gagn við þjálfun hesta. "Í sundinu þjálfum við hestana án þess að leggja of miklar byrðar á þá. Þetta er alveg sama æfing fyrir þá og okkur mannfólkið. Við getum farið í sund meidd á baki eða á fæti og finnum ekki fyrir eymslunum í vatninu." Hlaupabrettið sem Helgi Leifur hefur til umráða er nánast alveg eins og þau sem notuð eru í líkamsræktarstöðvum víðs vegar um heim. "Það er bara stærra, sterkara og kraftmeira. Það kemst upp í 25 kílómetra hraða á klukkustund og það er hægt að láta hrossin hlaupa í tíu gráðu halla," segir Helgi Leifur. Tamningamaðurinn vinnur nú að því að gera stöðina klára en hann býst við að opna hana innan skamms. "Við erum að klára að ganga frá tækjunum fyrir hreinsunarbúnað laugarinnar og svo opnum við eftir svona tvær til þrjár vikur," segir Helgi Leifur hestaþjálfari.
Menning Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Lífið samstarf Fleiri fréttir Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Sjá meira