Kærir Bush fyrir stríðsglæpi 5. júlí 2006 17:30 Elías Davíðsson hefur kært George Bush eldri fyrir glæpi gegn mannkyni. MYND/VALLI
George Bush eldri hefur verið kærður til íslenskra yfirvalda fyrir glæpi gegn mannkyni og árásarstríð. Á heimasíðunni aldeilis.net birtist kæran í heild sinni. Hún er gefin út af hópi áhugafólks um mannréttindi og réttlæti. Höfundur kærunnar er Elías Davíðsson og skrifar hann undir fyrir hönd kærenda. Kæran var afhent ríkislögreglustjóra á mánudaginn. Bush er kærður fyrir margvíslega alþjóðaglæpi og þess er krafist að hann verði kyrrsettur hér á landi á meðan aðild hans að glæpunum er rannsökuð. Bush er sagður hafa gerst sekur um brot gegn alþjóðlega vernduðum einstaklingi, brot gegn almennum borgurum, árásarstríð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi. Glæpina hafi hann framið þegar hann fyrirskipaði innrásina í Panama 1989 þar sem skipt var um stjórnvöld og í Persaflóastríðinu. Kæran er ítarlega rökstudd og er þar tekið fram að glæpir Bush séu alþjóðlegir glæpir. Þannig sé skylda hvers ríkis að rétta yfir einstaklingum sem gerast sekir um slíka glæpi eða framselja þá einhverjum sem vill gera það. Frekari fylgiskjöl hafa verið send ríkislögreglustjóra en hópurinn býst þó hvorki við mjög skjótum eða góðum viðbrögðum. Elías Davíðsson er nokkurs konar sjálfmenntaður sérfræðingur í alþjóðarétti. Greinar hans hafa birst í erlendum lagatímaritum og hann beðinn um að halda fyrirlestra á ráðstefnum víða um heim.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira