12 ára stúlka bjargaði haferni frá drukknun 28. júní 2006 20:23
Tólf ára Grundfirðingur sýndi mikið snarræði þegar hún handsamaði haförn sem féll í Kirkjufellslónið skammt fyrir innan Grundarfjörð. Má segja að hún hafi bjargað konungi fulganna frá drukknun. Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir, 12 ára Grundfirðingur var í gærkvöldi ein á ferð á hesti sínum við Kirkjufellslón skammt frá heimabæ hennar. Á ferð sinni sá hún haförn, konung fuglanna, falla af himnum og ofan í lónið. Sigurbjörg beið ekki boðanna heldur synti á eftir erninum og dró hann í land. Hún vafði svo vesti sínu utan um hann og fór með hann út á veg þar sem hún beið í tvo tíma eftir hjálp. Örninn er nú kominn í Húsdýragarðinn til aðhlynningar en ljóst er að löng bið verður á því að hann fái að fara aftur út í frelsið enda er hann mjög lemstraður. Fyrst um sinn þurfi hann að safna kröftum en eftir það þurfi hann á nokkrum böðum að halda en hann er þakinn grút. Það sem er þó verst er að á hann vantar stélfjaðrirnar en ekki þykir ráðlegt að hleypa honum aftur í náttúruna án þeirra. Því gæti örnin þurft að vera í endurhæfingu á annað ár. Tómas Ó. Guðjónsson forstöðumaður Húsdýra- og fjölskyldugarðsins áréttaði að þó stúlkan hefði sýnt mikla dirfsku við björgunina væri ekkert grín að lenda í arnarklóm enda launaði fuglinn Sigurbjörgu björunina með því að grípa um hana þéttingsfast með klónum. Sigurbjörg virtist þó ekki reiðari en svo að í samtali við NFS sagði hún að ætlunin væri að heimsækja fuglinn eins fljótt og hún gæti en hér má sjá tilvonandi heimkynni hans. Sigurbjörg sagði einnig að hún væri búin að gefa honum fuglinum nafn, það er Sigurörn.
Fréttir Innlent Mest lesið Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent Fleiri fréttir Sögulega lágt fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent