Segir úrskurð ekki í samræmi við fyrri úrskurð samkeppnisyfirvalda 28. júní 2006 17:20
Forstjóri Dagsbrúnar undrast úrskurð Samkeppniseftirlitsins, sem hefur úrskurðað að samruni félagsins við afþreyingarfyrirtækið Senu sé ólöglegur. Hann segir úrskurðinn ekki í samræmi við fyrri úrskurð samkeppnisyfirvalda. Úrskurðinum verður áfrýjað til áfýjunarnefndar samkeppnismála. Fram kemur í úrskurði Samkeppniseftirlitsins að samruni Dagsbrúnar, sem rekur meðal annars NFS, og Senu hindri virka samkeppni þar sem markaðsráðandi staða beggja fyrirtækja á mörkuðum fjölmiðlunar og afþreyingar styrkist með samrunanum. Þá benda samkeppnisyfirvöld á að Baugur fari í skilningi samkeppnislaga með yfirráð í Dagsrún í ljósi hlutafjáreignar sinnar og tengdra aðila. Baugur ráði einnig yfir Högum en Sena og Hagar starfi að hluta til á sama markaði, það er tónlistar og tölvuleikjamarkaði. Þá hafi Dagbrún yfirburðastöðu á áskriftarsjónvarpsmarkaði.Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir markað Senu og Dagsbrúnar aðeins skarast að litlu leyti og hægt hefði verið að leyfa samrunann með litlum skilyrðum. Hann bendir enn fremur á að í forsendum Samkeppniseftirlitsins komi fram að Stöð 2 starfi á markaði sem sé teiknaður í kringum stöðina og það gangi þvert á úrskurð Samkeppnisstofnunar frá árinu 2000 þar sem talið var að Stöð 2 og RÚV kepptu á sama markaði.Þá hafnar Gunnar Smári því að Dagsbrún sé undir beinni stjórn Baugs. Það standist ekki því félagið sé skráið í Kauphöll Íslands og ef Baugur stjórnaði öllu hjá Dagsbrún væri yfirtökunefnd væntanlega búin að taka Dagsbrún af markaði.Dagsbrún hyggst skjóta úrskurði Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og ef hún kemst að sömu niðurstöðu ganga kaup félagsins á Senu til baka.Baugur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem því er hafnað að félagið fari með yfirráð í Dagsbrún. Hlutur Baugs sé 31 prósent og ekki um frekari hlutafjáreign að ræða. Þá segja forsvarsmenn Baugs að félaginu hafi ekki verið veittur andmælafrestur í málinu og að niðurstaðan verði kærð til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira