Innlent

Ferjulægi í Bakkafjöru til að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar

MYND/Haraldur Jónasson

Ferjulægi í Bakkafjöru verður tekið í notkun árið 2010 ef tillögur Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra ná fram að ganga. Siglingatími milli lands og eyja verður þá aðeins um hálftími. Sturla kynnti tillögur sínar á ríkisstjórnarfundi í gær.

Samgönguráðherra leggur til að lokið verði við nauðsynlegar rannsóknir og undirbúning svo framkvæmdir geti hafist svo fljótt sem auðið er. Tillögur sínar byggir Sturla á lokaskýrslu starfshóps sem hann skipaði til að fjalla um samgöngur við Vestmannaeyjar í maí 2004. Starfshópurinn komst að þeirri niðurstöðu að ferjulægi í Bakkafjöru væri fýsilegur kostur miðað við þær rannsóknir sem unnar hafa verið og að ekki væri réttlætanlegt að leggjast í frekari rannsóknir varðandi gerð jarðgangna milli lands og eyja. Sturla segir því að ekkert hafi verið því til fyrirstöðu að taka ákvörðun í málinu.

Ástand í samgöngumálum milli lands og Vestmannaeyja hefur verið óásættanlegt að mati margra og hópur þjónustuaðila og áhugamanna um ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum talar um neyðarástand í samgöngumálum og óskar eftir nýju gangmiklu skipi svo fljótt sem auðið er og að flug með 30-50 sæta flugvélum verði komið á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja þegar í stað.

Sturla segir að þangað til verði hugað að því hvernig best sé hægt að tryggja hámarks nýtingu á núverandi samönguleiðum með þarfir Vestmannaeyinga og ferðamanna að leiðarljósi. Í því sambandi mun samgönguráðherra eiga frekari viðræður við fulltrúa bæjarstjórnar Vestmannaeyja og fara nánar yfir stöðu þeirra mála.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×