Viðskipti fyrir 47 milljarða 28. júní 2006 08:00 Hannes Smárason
FL Group festi í gær kaup á 24,2 prósenta hlut í Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hf., en seljendur eru að stærstum hluta Magnús Kristinsson og Kristinn Björnsson. Alls nemur andvirði viðskiptanna 47 milljörðum króna en eftir kaupin á FL Group tæplega 26 prósenta hlut í bankanum. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir í fréttatilkynningu kaupin á hlutnum í bankanum vera í takt við þá stefnu félagsins að vera áhrifafjárfestir í félögum í vexti. Við hlökkum til samstarfsins við aðra hluthafa í bankanum og sjáum ýmis tækifæri til sóknar, bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Magnús Kristinsson segist skilja sáttur við Straum-Burðarás. Ég tel að það sé Straumi farsælast að brjóta upp það eigendamynstur sem verið hefur í félaginu og freista þess á þann veg að ná fram sáttum um áherslur og framtíðarsýn Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. Jafnframt tel ég og þeir sem mér tengjast mjög áhugavert að koma til liðs við FL Group hf., sem hefur á liðnum misserum sýnt frábæra hæfni til endurnýjunar, byggir á traustum stoðum kjarnastarfsemi og nýrri sýn við árangursmiðaðar fjárfestingar innan lands sem utan, er haft eftir Magnúsi í tilkynningu. Greitt verður fyrir hlutinn með hlutabréfum í Kaupþingi banka, að verðmæti tólf milljarða, og FL Group, að verðmæti 35 milljarðar. Talið er víst að með þessum kaupum komist á friður í eigendahópi Straums-Burðaráss. FL Group er nú stærsti einstaki hluthafinn í félaginu.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Sjá meira