J-Lo leikur ekki Sue Ellen 8. ágúst 2006 17:00 Jennifer Lopez Leikur ekki Sue Ellen í kvikmyndinni Dallas sem byggð verður á samnefndum sjónvarpsþáttum. Heyrst hefur að John Travolta muni leika J.R. Ewing.
Jennifer Lopez mun ekki leika í fyrirhugaðri kvikmynd sem byggð verður á sápuóperunni um Ewing-fjölskylduna í Dallas. J. Lo átti að leika hina drykkfelldu Sue Ellen en John Travolta átti að leika eiginmann hennar, olíubaróninn JR Ewing. Jen mun ekki leika í Dallas, sagði Leslie Sloane Zelnick, talsmaður leik- og söngkonunnar, í samtali við blaðið Star en gaf ekki nánari útskýringu á því hver ástæðan væri. Þær sögusagnir ganga nú fjöllum hærra í Hollywood að Jennifer sé ólétt og eftir að hún hætti við tónleikaferðalag um Evrópu og Asíu fékk sá orðrómur byr undir báða vængi. Það hefur ekki gengið þrautalaust að ráða fólk til starfa í Dallas-myndina því Robert Luketic hætti við að taka við leikstýra myndinni. Hann bar fyrir sig listrænan ágreining við framleiðendur myndarinnar. Luketic og Lopez unnu saman að myndinni Monster-In-Law. Gurinder Chadha mun leikstýra Dallas en hann leikstýrði myndinni Bend It Like Beckham sem skaut Keiru Knightley upp á stjörnuhimininn. Kvikmyndaframleiðendurnir standa því frammi fyrir nokkrum alvarlegum vanda því Sue Ellen var ein af burðarásunum í söguþræði hinna vinsælu þátta. Aðdáendur þáttanna eru þó flestir mjög ánægðir með þessa ákvörðun Jennifer Lopez því fæstir þeirra gátu séð hana fyrir sér í þessu hlutverki.
Menning Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Fleiri fréttir „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Sjá meira