Í baráttu við sjálfan sig 24. ágúst 2006 12:30 Tónlistarmaðurinn Pétur Ben heldur útgáfutónleika í kvöld í tilefni af sinni fyrstu plötu, Wine for my Weakness. MYND/Stefán
Tónlistarmaðurinn Pétur Ben heldur tónleika í Iðnó í kvöld í tilefni af útgáfu fyrstu plötu sinnar, Wine For My Weakness, sem kemur út hjá 12 Tónum í dag. Öll lögin á plötunni eru frumsamin og fóru upptökur að mestu fram í Sundlauginni undir stjórn Péturs og Bigga Poolboy sem sá einnig um allan lokafrágang. Platan inniheldur ellefu lög og hefur eitt þeirra, White Tiger, þegar fengið að hljóma í útvarpi.Áhrif frá Neil Young og DylanÉg hef verið með þetta efni í handraðanum. Svo eftir að ég kláraði sándtrakkið við Börn á vordögum fór ég á fullt í að klára plötuna, segir Pétur Ben. Hann segist fara um víðan völl á plötunni og taki m.a. áhrif frá Neil Young, Bob Dylan, Nina Simone og Radiohead. Hún er svolítið þjóðlagaskotin og líka rokkuð á köflum. Svo fer hún niður í strengi og kassagítar og þannig huggulegheit, segir Pétur sem fékk m.a. aðstoð trommarans Sigtryggar Baldurssonar á plötunni. Einnig syngur þar konan Péturs, Anna Kristín Guðmundsdóttir. Ómetanlegur MugisonÞó svo að Pétur hafi ekki gefið út plötu áður hefur hann verið á kafi í tónlistinni undanfarin ár. Hann hefur samið tónlist fyrir leikhús auk þess sem hann samdi eins og áður segir tónlistina við nýjustu mynd Ragnars Bragasonar, Börn, sem er væntanleg í kvikmyndahús í næsta mánuði. Auk þess hefur hann unnið töluvert með Mugison og bæði spilað með honum á tónleikum og á plötunni Mugimama is this Monkeymusic? Mugison kemur þó hvergi við sögu á Wine for my Weakness. Hann hefur mest verið andlegur stuðningur því hann hefur svo mikið að gera sjálfur. En ég notaði hann samt og var að fá hann í heimsókn til að hlusta og síðan var hann að ráðleggja mér með umslagið á plötunni. Hann var algjörlega ómetanlegur þótt hann spilaði ekkert á þessari plötu. Pétur játar að vinnan við leikhús- og kvikmyndatónlistina eigi sinn þátt í fjölbreytni plötunnar. Einnig hafi tónsmíðamenntun hans úr Tónlistarskóla Reykjavíkur komið að góðum notum en hann lauk námi þaðan vorið 2004. SjálfsbaráttuplataPétur segir að platan sé nokkurs konar sjálfhjálparmeðal, eins og nafnið Wine for my Weakness gefur til kynna. Ég hef verið að lækna sjálfan mig af eigin krankleikum. Eru ekki allir meingallaðir, segir hann í léttum dúr og bætir við: Þetta er fyrst og fremst sjálfsbaráttuplata. Útgáfutónleikarnir í Iðnó í kvöld hefjast klukkan 22.00 og er aðgangseyrir 1000 krónur. freyr@frettabladid.is @Megin-Ol 8,3p:Sjá umsögn um plötu Péturs á bls. 52
Menning Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Sjá meira