Uppákomur um allan bæ 24. ágúst 2006 18:30 Mikið um dýrðir á akureyri um helgina Guðrún Þórsdóttir, verkstýra Akureyrarvöku, segir að Ráðhústorgið verði meðal annars tyrft á Akureyrarvöku og þar haldin mikil kúrekaveisla með gjörningum, gleði og glaumi allan daginn. MYND/ Jóhann Ásmundsson
Akureyrarvaka er á laugardaginn og lýkur þar með Listasumari á Akureyri með uppákomum af ýmsum toga um allan bæ. „Akureyrarvakan sjálf er á laugardaginn en það er hefð fyrir því að hafa setningu í Lystigarðinum á föstudagskvöldinu," segir Guðrún Þórsdóttir, verkstýra Akureyrarvöku. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi heldur ávarp, veitt eru verðlaun fyrir fallegustu garðana og fleira, en til hliðar við formlegheitin er skemmtun fyrir alla aldurshópa. „Við verðum með í garðinum uppákomur sem fólk getur gengið á milli, eins og sögur fyrir börnin, tónlist og vonandi eitthvað fyrir augað. Svo verður leikið fyrir dansi en það er hljómsveit Ingu Eydal sem gerir það," segir Guðrún. Sögu Akureyrarvöku má rekja aftur til ársins 2002 og er óhætt að fullyrða að þar sé á ferðinni sannkölluð bæjarhátíð. „Akureyrarvakan er hátíð bæjarbúa og hún gerir sig í rauninni sjálf, með göldrum og ótrúlegum uppákomum. Bæjarbúar taka sig saman, fyrirtæki, einstaklingar, félög, skólar og allir eru að gera eitthvað," segir Guðrún. Dagskráin er ótrúlega fjölbreytt og úti um allan bæinn, og segir Guðrún að erfitt sé að stikla á stóru í dagskránni. „Magnaðir óperutónleikar verða haldnir í listagilinu undir berum himni, alveg eins og í Reykjavík á Menningarnótt. Þar má búast við betri stemningu, þar sem þetta er lokaðra rými og við ætlum að bjóða upp á betra veður." Ráðhústorgið verður líka tyrft og þar verður mikil kúrekaveisla, gjörningar, gleði og glaumur allan daginn. Myndlistarsýningar eru opnaðar úti um allan bæ, fjölskylduhátíðir haldnar á bílaplönum og að Hömrum, inni og úti og tónlistaratriði úti um allt, að ógleymdri draugagöngu Minjasafnsins og Leikfélagsins. Guðrún segir að ótrúlega margt sé að gerast og í rauninni miklu meira en kemur fram í auglýstri dagskrá Akureyrarvöku. „Ef þú ert með eitthvert atriði mætir þú bara og stingur í samband ef þú sérð eitthvað plögg," bætir hún hlæjandi við. Lokaatriði hátíðarinnar hefst með því að fólk safnast saman fyrir framan arkítektastofuna Kollgátu. „Þetta eru gamlar kartöflugeymslur þar sem fólk mun safnast saman og verður gengið fylktu liði með blysum og trumbuslætti niður göngugötuna og inn á torg. Þar hefst lokaatriðið, punkturinn yfir i-ið, en að því standa ótal margir aðilar." Sýningarstjórn er í höndum Þorbjargar Halldórsdóttur, sem kölluð er frúin í Hamborg, og má búast við atriðum úr ýmsum áttum. Dagskrá Akureyrarvöku má nálgast á heimasíðu Akureyrarbæjar og í blaðinu Dagskráin sem gefið er út á Akureyri.
Menning Mest lesið „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Lífið Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun Ragga Holm og Elma giftu sig Lífið Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Lífið Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Tíska og hönnun Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Lífið „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Lífið „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Lífið Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð Lífið Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni Fleiri fréttir Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Sjá meira