Meiri kraftur og aukinn uppreisnarandi 24. ágúst 2006 16:00 Hafþór Yngvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur rýmir fyrir nýjum stefnum og straumum í Hafnarhúsinu. MYND/Vilhelm
Tæpt ár er liðið síðan Hafþór Yngvason tók við lyklavöldum í Listasafni Reykjavíkur en eins og sagt er fylgja nýir siðir nýjum herrum og nú boðar safnið stefnubreytingar. Hafþór er forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur sem hefur starfsemi í þremur húsum, í Hafnarhúsi við Tryggvagötu, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni við Sigtún en hann útskýrir að breytingarnar feli meðal annars í sér aukna aðgreiningu milli starfsemi húsanna. „Í Hafnarhúsinu verður stefnt að því að kynna nýjustu strauma og stefnur í myndlist og því verður húsið opnað til dæmis fyrir ungu fólki og öðrum þeim sem eru að gera tilraunir með ný tjáningarform í list sinni," segir Hafþór. Um næstu helgi opnar þar sýning sem markar upphaf þessarar áherslubreytingar. Á sýningunni „Pakkhús postulanna" sýna ellefu listamenn innsetningar og gjörninga en allir eru þeir fæddir eftir 1968. Titillinn vísar til samnefndra reifkvölda sem haldin voru á níunda áratugnum en markmiðið með sýningunni er að ná fram þeim uppreisnaranda og krafti sem einkenndi þann tíma - og ganga um leið þvert á viðteknar venjur í starfsemi safnsins. Sýningarstjórarnir Daníel Karl Björnsson og Huginn Þór Arason eru fremur ungir að árum miðað við marga þá sem unnið hafa slík störf fyrir Listasafn Reykjavíkur undanfarin ár en Hafþór bendir á að það hafi verið lykilatriði þegar kom að því að setja saman sýninguna. Þeir hafi nauðsynlega yfirsýn og tengsl við tíðarandann sem safnið vill fanga og því hafi þeir valið listamenn á sýninguna. Vegleg sýningarskrá mun einnig koma út í tengslum við sýninguna. „Hún verður þó meira í ætt við samtalsbók en eiginlega sýningarskrá," segir Hafþór enda er henni ætlað að vekja frekari umræðu um málefni listarinnar. Að fyrrgreindri sýningu lokinni segir Hafþór að önnur tímamótasýning verði sett upp í Hafnarhúsinu en hún ber yfirskriftina „Uncertain States of America". „Þar sýna ungir bandarískir myndlistarmenn það sem efst er á baugi þar í landi," segir Hafþór en tildrög þeirrar sýningar má rekja til Gunnars Kvaran, safnstjóra samtímalistasafnsins Astrup Fearnley í Ósló, og samstarfs hans við tvo af fremstu sýningarstjórum Evrópu, Daniel Birnbaum og Hans Obrist, sem ferðuðust um Bandaríkin í tvö ár og söfnuðu upplýsingum um nálega þúsund listamenn fædda eftir 1970. Sýningin birtir síðan afrakstur þeirrar vinnu og fangar þær hræringar sem eiga sér stað hjá myndlistarfólki í Bandaríkjunum. Hafþór segir að á Kjarvalsstöðum verði einnig breytinga að vænta því þar verði nú lögð frekari áhersla á málverkið. „Það eru mjög spennandi hlutir að gerast í málverkinu," áréttar hann. Hin fyrsta verður sýning á málverkum ungrar listakonu, Þórdísar Aðalsteinsdóttur, sem hefur getið sér gott orð á erlendri grund fyrir einföld en harla óvenjuleg verk sín en sýning hennar verður opnið í lok september. Aukinheldur verður einnig sett upp hönnunarsýning á Kjarvalsstöðum á komandi vetri. Hlutverk Ásmundarsafn helst að mestu óbreytt að sögn Hafþórs. „Þar verða áfram sýningar á verkum hans og sem fyrr verður listamönnum boðið að sýna í salnum en þær sýningar hafa jafnan kallast á við verk Ásmundar." Nánari upplýsingar um sýningarhald vetrarins er að finna á heimasíðu safnins, http://listasafnreykjavikur.is.
Menning Mest lesið Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Tíska og hönnun Ragga Holm og Elma giftu sig Lífið Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Lífið Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð Lífið „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Lífið Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Fleiri fréttir Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“