Erlent

Reynt að auka tiltrú á markmiðum Bush í Írak

Bandarískir hermenn við sprengjuleit í Mosul í Írak.
Bandarískir hermenn við sprengjuleit í Mosul í Írak. MYND/AP

Yfirhershöfðingi Bandaríkjamanna í Írak og sendiherra Bandaríkjanna í Bagdad munu halda sameiginlegan blaðamannafund í Bagdad klukkan ellefu að íslenskum tíma vegna stefnu stjórnvalda í Washington. Þegar tvær vikur eru til þingkosninga í Bandaríkjunum mun fundinum vera ætlað að auka trú manna á áætlun Bandaríkjahers í Írak.

Samkvæmt könnun sem CNN lét gera, trúa 20 prósent Bandaríkjamanna að herinn sé að vinna baráttuna fyrir friði í Írak. Það er helmingi minni tiltrú en fyrir ári síðan.

Getgátur hafa verið uppi um að Bush Bandaríkjaforseti ætli að breyta stefnu sinni í Írak, til að bregðast við gagnrýnisröddum. Ný stefna mun miða að meiri sveigjanleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×