Annað strandhögg sjóræningjans 22. júlí 2006 12:00 Jack SParrow Depp byggði persónuna á Keith Richards, gítarleikara The Rolling Stones, en bætti að auki við ýktum tilbrigðum á borð við ráfandi göngulag.
Sjóræninginn Jack Sparrow snýr aftur á hvíta tjaldið í sumar í myndinni Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest. Sem fyrr er það Johnny Depp sem ljær Sparrow líf en myndin hefur slegið í gegn svo um munar. Birgir Örn Steinarsson ræddi við Depp á dögunum. Johnny Depp er greinilega timbraður, þar sem hann situr í sal Claridge-hótelsins í Soho hverfi í London. Enn með stírur í augum og röddin ívið lægri en venjulega. Kannski engin furða þar sem kvöldið áður var haldinn heljarinnar gleðskapur í tilefni velheppnaðrar frumsýningar Pirates of the Caribbean 2. Honum virðist ekkert sérstaklega skemmt að svara spurningum þessa stundina. Johnny er hins vegar sérstaklega kurteis maður og svarar öllum spurningum með virðingu fyrir spyrjandanum, sama hversu kauðslega þær hljóma. Hann gefur sér tíma til að hugsa og reynir að vera hnyttinn í tilsvörum. Depp þykir greinilega mjög vænt um Jack Sparrow, sjóræningjann sem hann leikur í Pirates of the Caribbean, því húðflúrið sem sést á hendi sjóræningjans í myndinni er ekta; útlínur af þresti með nafninu Jack ritaðar undir. Hann á eftir að leika rulluna í þriðja sinn sem er nýlunda því Depp hefur aldrei svo mikið sem leikið í framhaldsmynd áður. „Ég hef bara aldrei leikið í „smelli" þannig að framhaldsmyndir komu aldrei til tals áður," útskýrir leikarinn. „Mér leist bara mjög vel á hugmyndina. Ég varð hlessa yfir hversu vinsæl fyrri myndin var og er það í rauninni ennþá. Ekki síst á hversu vel persóna Jack Sparrow féll í kramið. Það gaf mér styrk. Á sínum tíma áttu sumir af „betur klæddu" einstaklingunum hjá Disney erfitt með að sætta sig við hvernig ég lék hlutverkið. Sú staðreynd að leikur minn varð svona mikið atriðið í velgengni myndarinnar veitti mér byr undir báða vængi."Jack og KeithDepp mótaði persónu sjóræningjans með Keith Richards, gítarleikara The Rolling Stones, í huga með ýktum tilburðum, til dæmis ráfar Sparrow rosalega þegar hann gengur.„Ég fékk hugmyndina að göngulaginu eftir að hafa þolað gífurlegan hita. Ég lokaði mig inni í gufubaði í langan tíma, en ég mæli samt eindregið á móti því. Þegar maður lokar sig inni í gífurlegum hita í langan tíma er nánast eins og maður sé í vímu, og maður sveigir fram og til baka. Manni líður mjög illa í líkamanum og maður neyðist því til að ganga svona. Þar fann ég hugmyndina aðlíkamstjáningu Jacks, án efa. Talandinn er frá Keith Richards."Gítarleikarinn hefur einmitt samþykkt að koma fram í þriðju myndinni og bregður sér þar í hlutverk föður Sparrows. „Ef hann drepur sig ekki með því að detta úr kókóstré áður. Keith hefur áhuga og þetta lítur allt mjög vel út. En fyrir mér er þetta ekki orðið að veruleika fyrr en gæinn mætir á tökustað í búningnum sínum."Þrátt fyrir allt telur Depp sig ekki enn kominn í náðina hjá þeim jakkafataklæddu hjá Disney. „Ja, þeir eru nú ekki búnir að sjá Pirates 3 ennþá. Ég átti einmitt þetta samtal við Gore Vebrinski, leikstjóra myndarinnar, á dögunum. Við vorum sammála um það að ef það sem við erum að gera gerir þá ekki taugaveiklaða, þá erum við ekki að sinna starfi okkar sem skyldi. Það verður gaman að sjá viðbrögð þeirra við þriðju myndinni."Heillandi lífsmáti sjóræningjaÍ einu atriði myndarinnar tekst Jack Sparrow einhvern veginn að koma sér í stöðu höfðingja frumbyggja á framandi slóðum. Ættbálkurinn talar sitt eigið tungumál og fljúga heilu setningarnar á milli Jacks og „þegna hans" á þessu undarlega tungumáli. Maður veltir því fyrir sér hvort þetta sé byggt á einhverju raunverulegu tungumáli, eða hvort þetta sé bara spunnið á staðnum?„Bæði," svarar Johnny hreinskilnislega og brosir. „Tungumálið var ekki beint í handritinu, en við vorum búin að búa til einhvers konar hugmynd að því fyrir. Síðan gerðum við það ögn klámfengnara og skítugra og skutum atriðið."Depp segir margt heillandi við líf sjóræningja. „Ætli það sé ekki frelsið? Alla langar til þess að vera algjörlega frjáls og engum háður." Hann segir það ekki síst ánægjulegt að hlutverkið hafi vakið mikla lukku meðal barna. „Augljóslega snertir það mann töluvert að sjá lítinn krakka uppklæddan eins og Jack Sparrow. Það að maður geti haft svona mikil áhrif á jafn ungt barn með vinnunni sinni er magnað. En ég hefði nú reyndar alveg getað séð fyrir mér litla krakka klædda sem Ed Wood eða Edward Scissorhands eftir að ég kláraði þær myndir. Það hefði verið gaman."Bæði yfirmaður Disney og framleiðandinn Jerry Bruckheimer hafa viðurkennt að stefnan sé að gera fleiri Pirates-myndir eftir að tökum á þeirri þriðju lýkur. Depp gefur ekkert upp um hvort hann taki þátt í þeim. „Eins og er hef ég ekkert á dagskránni eftir að tökum á Pirates 3 lýkur. Ef Jerry vill halda áfram að ráða mig í vinnu, þá á ég auðvitað eftir að vera ánægður með það. Ég ætla bara að fara í þá átt sem ég enda á að fara í, hvert það verður veit ég bara ekki ennþá."Í Barbie-leik eftir vinnuÞegar tími gefst reynir Depp að slaka á með börnunum sínum. „Ég reyni bara að hanga eins mikið með þeim og ég get, á stöðum sem símar hringja ekki. Börnin mín hafa mikil áhrif á það hvernig ég vinn. Þau eru ekki ennþá búin að sjá þessa mynd, því ég var ekki viss um hvort hún sé of ógeðsleg. Ég er kominn á þá skoðun að það verði allt í lagi fyrir þau að sjá hana. Ég leik mér mikið í Barbie með börnunum mínum, eins og allir gera, og þá prufa ég kannski á þeim nokkrar raddir. Yfirleitt biðja þau mig um að hætta og tala bara venjulega. Það hefur bara gerst einu sinni að dóttir mín bað mig um að halda áfram að leika persónu eftir að ég byrjaði að prófa þetta. Það var þegar ég var að reyna að finna rödd handa Willie Wonka. Það var stór breyting í mínu lífi að verða pabbi. Þá uppgötvaði ég hversu miklum tíma maður hafði eytt í bölvaða vitleysu."Hann segir að það séu vissulega aðrar persónur en Sparrow sem hann gæti hugsað sér að leika aftur.„Mér fannst alltaf eins og við hefðum getað gert framhald af Edwards Scissorhands. Eins og við hefðum ekki alveg nýtt alla þá möguleika sem sú persóna bauð upp á. Ég sakna persónanna eftir að tökum á myndunum lýkur. Maður verður stundum nokkuð dapur þegar vinnunni lýkur, því maður veit að maður á aldrei aftur eftir að vera þessi sama persóna. Ég hlakka nú ekki mikið til að þurfa að kveðja Jack Sparrow," segir kafteinn Johnny Depp að lokum.„Mér fannst alltaf eins og við hefðum getað gert framhald af Edwards Scissorhands. Eins og við hefðum ekki alveg nýtt alla þá möguleika sem sú persóna bauð upp á. Ég sakna persónanna eftir að tökum á myndunum lýkur."
Menning Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira