Innlent

Óskar eftir opinberri úttekt

Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja
Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja

 Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja sendi á föstudag beiðni til Heilbrigðisráðuneytisins þar sem hann óskar eftir opinberri úttekt á stöðu sjúkraflugs til Vestmannaeyja. Beiðnina sendi hann vegna þess að það hefur ítrekað gerst að sjúkraflugvél er ekki til staðar í Vestmannaeyjum þegar þörf er á henni.

Í vikunni voru tvö tilvik þar sem óskað var eftir vélinni en hún ekki til staðar. Elliði segir að það komi oft fyrir að þúsundir manna safnist fyrir í Eyjum og að þetta ástand sé algjörlega óviðunandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×