Innlent

Blóðugt blaðastríð framundan

David Montgomery Samkeppni við nýtt frídagblað í haust í Danmörku vekur engan ugg í brjósti nýs eiganda Orkla Media.
afp.nordicphotos
David Montgomery Samkeppni við nýtt frídagblað í haust í Danmörku vekur engan ugg í brjósti nýs eiganda Orkla Media. afp.nordicphotos

David Montgomery, nýr eigandi fjölmiðlasamsteypunnar Orkla Media, er reiðubúinn undir blóðugt stríð á dagblaðamarkaði í Danmörku þegar útgáfa fríblaðs að hætti Fréttablaðsins hefst á helstu þéttbýlisstöðumí haust.

Orkla Media er eitt þeirra félaga sem Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar sem er móðurfélag 365 Miðla, hafði augastað á lengi vel en fyrirtækið gefur út dagblöð á borð við Berlingske Tidende, Weekendavisen, B.T. og Aarhus Stiftstidende auk annarrar útgáfu. Ekkert varð úr þeim kaupum en fyrirtækið var selt fyrir skömmu breska fyrirtækinu Mecom Group.

Á fundi sem nýi eigandinn hélt í Noregi í gær kom skýrt fram að hann hræddist ekki væntanlega samkeppni fríblaðs Dagsbrúnar en fyrirtækið væri fyllilega undir þá samkeppni búið og ákveðið fjármagn hefði þegar verið sett til hliðar til að mæta þeirri samkeppni sem þá verður. Vildi hann ekki nefna upphæðir en fjölmiðlamenn í Danmörku búast flestir við að sú barátta verði blóðug og að útgáfa einhverra þeirra fjölmörgu dagblaða sem gefin eru út þar í landi leggist af í kjölfarið.

Montgomery lét einnig hafa eftir sér að ekki séu neinar áætlanir uppi á þessu stigi um að leggja niður dagblöð samsteypunnar né heldur fækka störfum. Margir starfsmenn óttast að slíkt verði óhjákvæmilegt þegar frídagblaðið verður gefið út í haust í samkeppni við áskriftarblöðin. - aöe




Fleiri fréttir

Sjá meira


×