Segja fólkið vera agndofa 2. júlí 2006 07:30 Björn Ingimarsson
Byggðaráð Norðurþings og Langanesbyggðar á Norðausturlandi mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar um frestun vegaframkvæmda í fjórðungnum harðlega og telja að framkvæmdir til að slá á þenslu í samfélaginu eigi ekki að koma til framkvæmda í landshlutum þar sem þensluáhrifa gætir ekki og hefur ekki gætt á undanförnum misserum. Þvert á móti hafi þar verið samdráttur og fólksfækkun á síðustu áratugum. Björn Ingimarsson, sveitarstjóri í Langanesbyggð, segir að fólk sé agndofa yfir þessum áformum ríkisstjórnarinnar. Þetta eru vegabætur sem hefðu átt að vera komnar á fyrir áratugum og þá bara til að koma á eðlilegum samgöngutengingum á milli svæða. Loksins þegar menn sáu hilla undir að þetta yrði boðið út þá er það hoggið af með vísun til þensluáhrifa, sem er með hreinum ólíkindum. Hér ríkir mikil reiði. Vegna þessa hafa forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækja miklar áhyggjur og stjórn Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hefur skorað á stjórnvöld að láta útboð við vegaframkvæmdir í fjórðungnum fara fram eins og til stóð. Í sama streng hafa stærstu sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörðum tekið. Hörð mótmæli íbúa á Norðurausturlandi koma í kjölfar sterkra viðbragða frá Vestfjörðum vegna frestunar vegaframkvæmda þar. Allt útlit er fyrir að þverun Mjóafjarðar verði frestað sem þýðir að bundið slitlag frá norðanverðum fjörðunum á hringveginn verður ekki að veruleika á næstunni. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir að það væri æskilegt að fresta ýmsum öðrum framkvæmdum en samgöngubótum. Vegaframkvæmdir í Djúpi mega einfaldlega ekki bíða. Sá kafli sem er eftir er ónýtur því hann hefur beðið eftir því lengi að þessi brú yfir Mjóafjörð yrði gerð. Ég get ekki stutt þennan tiltekna þátt í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Fleiri fréttir Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Sjá meira