Innlent

Íbúðalánin dýrari

íbúðalánasjóður Vextir á íbúðalánum hafa hækkað þó nokkuð síðan þeir voru lægstir árið 2004, eða 4,15 prósent.
íbúðalánasjóður Vextir á íbúðalánum hafa hækkað þó nokkuð síðan þeir voru lægstir árið 2004, eða 4,15 prósent.

 Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að hækka útlánsvexti íbúðalána sjóðsins um 0,10 prósentustig og verða þeir 4,95 prósent. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25 punkta lægri vöxtum eða 4,70 prósent.

Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar Íslands í gær segir að vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggi á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 29. júní ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa eru 4,24 prósent.

Vextir á íbúðalánum fóru lægst í 4,15 prósent árið 2004 en síðan þá hafa þeir hækkað jafnt og þétt hjá öllum þeim sem bjóða upp á þau. Glitnir, Sparisjóðurinn og Landsbankinn bjóða allir upp á íbúðalán með 4,90 prósent vöxtum í dag. Vextir hjá KB banka eru lægstir eða 4,75 prósent, gegn því að lántaki sé í viðskiptum við bankann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×