Fönkkóngurinn orðinn fullorðinn 10. ágúst 2006 13:30 Baldur Baldursson Plötusnúðurinn og útvarpsmaðurinn er búinn að kasta Stüssy-bolnum fyrir jakkaföt. Baldur er farinn að vinna hjá almannatengslafyrirtækinu Inntaki. MYND/Hari „
Ég hef nú alltaf verið tvöfaldur karakter, hef bæði starfað í markaðsmálum og í skemmtanabransanum. En það rétt, nú er ég kominn í PR-ið,“ segir plötusnúðurinn og athafnamaðurinn Baldur Baldursson, sem hóf nýverið störf hjá almannatengslafyrirtækinu Inntaki. Baldur hefur getið sér gott orð hjá yngri kynslóðinni sem umsjónarmaður Fönkþáttarins á X-inu 977, plötusnúður á skemmtistöðum og í skipulagningu viðburða á skemmtistöðum. Þar að auki var Baldur, eða Balli eins og hann er jafnan kallaður, einn stofnenda og eigenda tímaritsins Vamm og þar áður var hann markaðsstjóri Undirtóna. Auk nýja starfsins er Baldur orðinn sendiherra Reyka vodka á Íslandi og sér um kynningu á þeim íslenska drykk hérlendis. „Ég er búinn að vera hjá Inntaki í tvo mánuði. Þetta er að mörgu leyti svipað því sem ég hef verið að gera, bara á öðruvísi forsendum,“ segir Baldur, sem hefur alls ekki skipt alfarið um ham þó hann sé farinn að vinna hjá virðulegu fyrirtæki. „Nei, þeir sögðu við mig að ég ætti bara að vera ég sjálfur. Þeir vildu alls ekki að ég reyndi að vera eitthvað sem ég er ekki. Það vantaði einhvern yngri mann í fyrirtækið og ég hef auðvitað mikla reynslu úr afþreyingarheimi yngri kynslóðarinnar.“ Athygli vekur að Baldur er þegar farinn að klæða sig í samræmi við nýja starfið. Sá klæðnaður passar ekki beint við Balla fönk, útvarpsmann og plötusnúð, sem þó er vissulega enn við lýði. „Maður varð auðvitað að „súta“ sig upp. Manni væri nú varla vel tekið á fundum úti í bæ ef maður færi að mæta í Stüssy-bol,“ segir Baldur Baldursson, markaðsmaður, plötusnúður og útvarpsmaður.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Pattra með pæju-padelmót Lífið Fleiri fréttir Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Sjá meira