Ástríkur í Noregi 10. ágúst 2006 15:30 Það mælti mín móðir Víkingarnir fá að kynnast því að það er eitt að standa uppi í stafni og stýra dýrum knerri en allt annað að standa uppi í hárinu á Gaulverjum.
Félagarnir galvösku Ástríkur og Steinríkur eru mættir til leiks í teiknimyndinni Ástríkur og víkingarnir en þeir hafa ekki látið sjá sig í teiknimynd í fullri lengd í áratug. Þeir hafa þó skotið upp kollinum í bíó í leiknum myndum í tvígang á þessu tímabili við mátulegan fögnuð dyggra aðdáenda sem voru lítt hrifnir af afbökunum á frumtexta Goscinnys. Franska tröllið Gérard Depardieu leikur Steinrík í báðum þessum myndum og er um þessar mundir að leika í þriðju myndinni, sem fjallar um frægðarför Ástríks á Ólympíuleikana. Dyggir aðdáendur félaganna ættu því að taka þeim fagnandi þegar þeir mæta loks teiknaðir á ný en í nýju myndinni gefa þeir Rómverjum frí og taka rækilega í lurginn á herskáum víkingum. Víkingarnir taka land við Gaulverjabæ í leit sinni að óttanum sem þeir trúa að gefi mönnum vængi. Þetta reynist í fyrstu vera hin mesta fýluferð enda fer ekki mikið fyrir skræfum í Gaulverjabæ þar sem fólk óttast það eitt að himnarnir falli í höfuðið á því. Víkingarnir komast þó í feitt þegar þeir hafa hendur í hári ungs frænda Aðalríks, æðstráðanda í Gaulverjabæ. Pilturinn óttast bókstaflega allt og víkingarnir ræna honum því og sigla með hann til Noregs. Það er því ekki um annað að ræða en senda Ástrík og Steinrík á eftir þeim til þess að bjarga strák. Sjóðríkur seiðkarl mallar vænan slatta af töfraseyðinu sínu í nesti handa Ástríki og svo hefst eftirförin og þeir sem þekkja þá félaga vita upp á sína tíu fingur að þá eiga víkingarnir ekki von á góðu.
Menning Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira