Hádegistónar í Hallgrímskirkju 10. ágúst 2006 14:00 Orgelleikarinn Kári Þormar Endurnýjar kynnin af Klaisorgelinu í Hallgrímskirkju.
Orgelleikarinn Kári Þormar heldur hádegistónleika kl. 12 í Hallgrímskirkju í dag. Á sínum tíma var Kári fyrsti nemandinn sem lauk orgelnámi hér heima með tónleikum á hið glæsilega Klais-orgel í Hallgrímskirkju og endurnýjar hann því kynni sín af því merka hljóðfæri. Hann stundaði síðar framhaldsnám í orgelleik og kirkjutónlist í Düsseldorf í Þýskalandi. Að námi loknu var Kári organisti Kópavogskirkju, Fríkirkjunnar í Reykjavík en frá 2001 hefur hann verið organisti Áskirkju. Hann hefur haldið fjölda tónleika hér heima og erlendis, auk þess sem hann hefur komið fram með Mótettukór Hallgrímskirkju bæði á tónleikum og í sjónvarpi. Á efnisskrá Kára eru fjögur verk. Fyrst leikur hann sálmforleik eftir Sigfrid Karg-Elert og svo „Variations sur un thème de Clément Janequin“ eftir Jehan Alain. Þriðja verkið er Prelúdía og fúga í G-dúr eftir Johann Sebastian Bach og tónleikunum lýkur með „Prélude et Fugue sur le nom d‘Alain“ eftir Maurice Duruflé en verkið er einmitt samið í minningu Jehan Alain, sem lést langt fyrir aldur fram í síðari heimsstyrjöldinni. Tónleikarnir eru skipulagðir í samvinnu við Félag íslenskra orgelleikara og eru liður í tónleikaröð Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju.
Menning Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Fleiri fréttir Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Sjá meira