Kristján kveður Kastljós og heilsar Kauphöll 5. september 2006 15:00 Kristján kristjánsson Kveður samstarfsfólk sitt með tár á hvarmi. "
Hærri laun? Þú verður bara að giska á það sjálfur. Ég ætla ekki að tjá mig um mín prívatmál. En ég held að allir viti að Ríkissjónvarpið er nú ekki það fyrirtæki sem borgar best launin. En það er margt annað sem skiptir máli," segir Kristján Kristjánsson sjónvarpsmaður. Kristján er nú að söðla um. Hann er að hætta á Kastljósi Ríkissjónvarpsins og tekur við starfi hjá FL Group. Á laugardag greindi Fréttablaðið frá því að að Helgi Seljan væri að hefja störf í Kastljósi en frá því var gengið á fimmtudaginn að Kristján væri að hætta í þættinum. Því má ljóst vera að þeir Páll Magnússon sjónvarpsstjóri og Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, hafa ekki haft neinar vöflur á og verið fljótir að festa öngla sína í Helga sem arftaka Kristjáns. "Já, þeir voru snöggir að því þegar ákvörðun mín lá fyrir. Enda vanir menn," segir Kristján. Nákvæm starfslýsing Kristjáns hjá FL Group liggur ekki fyrir. Kristján segir það allt koma betur í ljós þegar hann hefur störf hjá fyrirtækinu. "Ljóst er að ég er ekki talsmaður eða upplýsingafulltrúi í þeim skilningi enda FL Group ekki á neytendamarkaði. En starf mitt lýtur meðal annars að upplýsingum, ímynd, markaðsmálum og samskiptum við Kauphöll." Kristán er síður en svo grænjaxl í málefnum er snúa að viðskiptalífinu því hann starfaði í mörg ár á Viðskiptablaðinu. Og nú kveður hann Kastljósið eftir sex ár. Með söknuði og tár á hvarmi. "Það segir sig sjálft. Frábær hópur og afspyrnugott fólk á öllum póstum. Bæði þeir sem vinna baksviðs og þeir sem á skjánum eru. Reyndar má segja svo um allt mitt samstarfsfólk á Ríkissjónvarpinu og undanskil ég þar engan."
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira