Vildi gera strákinn að manni 5. september 2006 09:00 kínversk stórborg Heimir segist hafa viljað víkka sjóndeildarhringinn hjá syni sínum með ferðinni.
Heimir Sverrisson og Daníel sonur hans dvöldust í Kína í tvo mánuði í sumar. Þeir tóku ævintýri sín upp og verða þættir um ferð þeirra sýndir á Skjá einum í haust. Heimir segir ferðina hafa komið til af því að hann vildi gera eitthvað óvenjulegt með Daníel í sumar. Þetta kom svona í staðinn fyrir að sópa göturnar með unglingavinnunni. Mig langaði að víkka sjóndeildarhringinn aðeins hjá stráknum, gera hann að manni, segir Heimir og hlær. Aðalástæðan var að ég vildi eiga þennan tíma með honum í allt annarri menningu þar sem við þyrftum að takast svolítið á við hlutina sjálfir, útskýrir hann. Heimir segir sig alltaf hafa langað til að fara til Kína. Ég hef alltaf haft áhuga á kínverskri menningu, landi og náttúru og vildi sjá þetta með eigin augum, segir Heimir. Hann segir allt hafa staðið undir væntingum, en margt hafa komið sér á óvart. Það er erfitt að lýsa því hvað kom mest á óvart. Menningin er mjög skrýtin og umferðarmenningin alveg út í hött. Svo er matarmenningin náttúrulega mjög sérstök og skemmtileg, segir Heimir. Heimir segir tvo staði á ferðalagi þeirra standa upp úr í minningunni. Við fórum kannski ekki á hefðbundnustu staðina, útskýrir hann. Við fórum til dæmis í Shaolin klaustur þar sem að Kung fu var fundið upp fyrir 1500 árum. Daníel var að læra Kung fu með munkunum frá fimm á morgnana og fram á kvöld í tvær vikur, segir Heimir. Við fengum nú nokkur sjokk þar líka, því munkarnir berja nemendur sína sundur og saman ef þeir hlýða ekki. Við urðum vitni að því að þeir börðu litla stráka með spjótum, heldur Heimir áfram. Hinn staðurinn var svo SOS barnaþorp þar sem við dvöldumst í viku og kynntumst alveg frábæru fólki. Daníel segir sveitina standa upp úr fyrir sitt leyti. Það var svo fallegt í Yangzhou sveitinni. Áður en við fórum þangað vorum við bara í stórborgum. Sveitin er önnur hlið á landinu og aðeins meira eins og ég hafði ímyndað mér Kína. Hann segist samt hafa orðið fyrir dálitlu áfalli þegar út úr borginni var haldið. Ég sá fullt af heimilislausu fólki og rónum sem sátu allsberir úti á götu og borðuðu úr ruslinu. Þeir áttu ekki neitt. segir Daníel. Hann segist þó endilega vilja snúa aftur til Kína. Þetta er örugglega besta sumar sem ég hef upplifað hingað til, segir Daníel.
Menning Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Fleiri fréttir Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Sjá meira