Lífið

Fórnar pinnunum

Christina Aquilera ætlar að einbeita sér að hjónabandinu og barneignum.
Christina Aquilera ætlar að einbeita sér að hjónabandinu og barneignum. MYND/Gettyimages
Hin nýgifta söngkona Christina Aguilera hefur nú látið alla pinna og hringi fjúka sem hún hefur skreytt líkama sinn með undanfarið. Aguilera var meðal annars með pinna í geirvörtunni og einn á viðkvæmari stað en nú hefur hún tekið það burt í virðingaskyni við hjónaband sitt og dansarans Jordan Bratman. Aguilera segir að þetta sé hin nýja ímynd hennar sem söngkona og að líkamsgötun sé liðið tímabil í hennar lífi. Hún segir einnig að næsta plata hennar sé sú síðasta í bili því nú vilji hún fara að taka því rólega og einbeita sér að hjónabandinu og barneignum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.