Lífið

Vanity Fair fékk einkaréttinn á Suri Cruise

Cruise og Holmes Líkt og jörðin hafi gleypt hjónakornin eftir að Suri Cruise kom í heiminn. CNN greindi frá því fyrir helgi að Vanity Fair hefði fengið einkaréttinn á myndum af barninu.
Cruise og Holmes Líkt og jörðin hafi gleypt hjónakornin eftir að Suri Cruise kom í heiminn. CNN greindi frá því fyrir helgi að Vanity Fair hefði fengið einkaréttinn á myndum af barninu.

Tímaritið Vanity hefur fengið einkarétt á að birta fyrstu myndirnar af Suri Cruise, fyrsta barni Tom Cruise og Katie Holmes. Suri fæddist 18. apríl og hefur Penelope Cruz lýst henni sem gullfallegu kornabarni. Engar myndir hafa birst af stúlkubarninu og því ljóst að þetta er mikill happafengur fyrir tímaritið ef satt reynist.

Fréttavefur CNN greinir frá því að ljósmyndarinn Anne Leibovitz muni taka myndirnar og að þær komi fyrir almennningssjónir með haustinu. Talsmaður ljósmyndastofu Leibovitz sagðist hins vegar ekkert kannast við þessa myndatöku og talsmaður Cruise vildi ekki láta neitt hafa eftir sér.

Suri Cruise hefur verið lýst sem eftirsóttasta kornabarni heims um þessar mundir enda er líkt og jörðin hafi gleypt þau Tom Cruise og Katie Holmes eftir að barnið fæddist. Fréttavefur CNN gengur jafnvel svo langt að líkja Suri við furðufuglinn Howards Hughes sem var alltaf í öllum helstu slúðurdálkum blaðanna án þess að til væri af honum mynd.

Varla var til sá fjölmiðill sem ekki fjallaði um ástarsamband Cruise og Holmes enda komu þau fram í þætti Opruh Winfrey þar sem Cruise hoppaði á sófanum um leið og hann sagðist dýrka Holmes. Hann bað síðan sinnar heittelskuðu í París og fengu fjölmiðlar að fylgjast með þessu öllu saman í beinni útsendingu. Margir töldu að sambandið væri einungis hluti af markaðsherferð Cruise en á þessum tíma var hann að kynna Mission: Impossible 3 og Holmes lék stórt hlutverk í Batman Begins. Mission:Impossible fékk þó ekki þá aðsókn sem reiknað hafði verið með og Katie Holmes var tilkynnt að þjónustu hennar væri ekki lengur óskað í Batman-flokknum.

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa leyft myndatökur af Shiloh dóttur sinni og seldu einkaréttinn fyrir nokkra tugi milljóna sem síðan voru gefnar til styrktar góðs málefnis. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum bíða því spenntir eftir að frétta hversu mikið Vanity Fair greiddi fyrir einkaréttinn en það er talið nema nokkrum tugum milljóna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.