Annar ættliðurinn í búningamálum Stuðmanna 12. ágúst 2006 15:00 Ragnar Kjartansson Hannar búninga fyrir Stuðmenn og leikur á dansleik með þeim í kvöld. „
Nei, við erum ekki arftakar Stuðmanna,“ segir Ragnar Kjartansson, söngspíra glysrokksveitarinnar Trabant, en í kvöld verður æði sérstakt sveitaball í reiðhöll sem staðsett er milli Hveragerðis og Selfoss og hefur hlotið nafnbótina Suðurlandsskjálftinn 2006. Hljómsveitirnar Stuðmenn og Trabant taka þar höndum saman og skella upp miklum dansleik en tónleikarnir eru lokahnykkurinn á ferð Stuðmanna um landið „Þeir eru auðvitað stórkostlegir og ein besta íslenska stofnunin,“ lýsir Ragnar yfir og bætir því að Trabant sé vissulega undir áhrifum frá gömlu „Stuðmannarugli“ eins og hann kemst að orði. „Stuðmenn eru áhrifamikil hljómsveit,“ segir Ragnar og bætir því að nokkur spenningur ríki í herbúðum hljómsveitarinnar enda eru þeir ekki vanir að spila á alvöru sveitaballi. Herlegheitin hefjast á miðnætti og hafa Stuðmenn brugðið á það ráð að bjóða íbúum norðaustur- og vestur kjördæmi frítt á tónleikana en það eina sem þeir þurfa að gera er að framvísa skilríkjum sem sanna búsetu þeirra þar. Stuðmenn hafa vakið þó nokkra athygli fyrir þá gestasöngvara sem hafa fylgt þeim á leið um landið og nægir þar að nefna Valgeir Guðjónsson og Stefán Karl Stefánsson. Ragnar ber þann draum með sér í brjósti að þeir Trabant-liðar geti einnig boðið gestum dansleiksins upp á viðlíka stjörnur. „Kannski tekur Íþróttaálfurinn eða Magni lag með okkur,“ segir Ragnar og hlær en útilokar ekki að hann muni stíga á stokk með Stuðmönnum seint um kvöldið. „Það getur allt gerst,“ segir hann. Þótt Trabant og Stuðmenn hafi ekki komið fram saman áður eru Ragnar og fjölskylda hans ekki alls ókunnug hljómsveit Íslands. Ragnar hannaði búninga og sviðsmynd Stuðmanna en faðir hans, Kjartan Ragnarsson, er ansi nátengdur Stinna stuð sem flestir Íslendingar ættu að kannast við úr kvikmyndinni Með Allt á hreinu. Stinni klæddist þar ansi skrautlegum búningum en þeir voru allir fengnir frá Þjóðleikhúsinu og eiga ættir sínar að rekja til Kjartans, sem hafði klæðst þeim á sviði. Það má því með sanni segja að hringurinn lokist í kvöld þegar Trabant og Stuðmenn trylla Sunnlendinga.
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira