Verðbólguhætta ef allir vilja hærri laun 3. júlí 2006 06:45 Ingibjörg R. Guðmundsdóttir
Samkomulag Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ríkisins sem koma átti í veg fyrir yfirvofandi uppsögn kjarasamninga gæti haft öfug áhrif en ætlað var ef önnur stéttarfélög krefjast þess að starfsmenn þeirra njóti sömu hækkana á launum. Þetta segja fulltrúar frá ASÍ og SA, en í samkomulaginu kveður á um 5,5 prósenta launahækkun fyrir þá sem ekki hafa fengið slíka hækkun seinasta árið. Einnig var samið um sérstaka fimmtán þúsund króna launahækkun ofan á lægstu kauptaxta. Tilgangurinn með þessum samningum um fimmtán þúsund króna launahækkunina var að jafna þá launataxta sem SA hefur samið um við helstu verkalýðsfélögin við þá taxta sem BSRB hafa samið um við ríki og sveitarfélög, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Staðreynd málsins er sú að ríki og stéttarfélög sem semja við ríkið hafa verið launaleiðandi þrátt fyrir að í flestum öðrum löndum sé það almenni markaðurinn sem skilgreinir svigrúm til launahækkana. Með þessu samkomulagi er verið að gera tilraun til þess að stilla þetta af en ef aðrir fara að krefjast þess að fá það sama þá erum við bara að elta skottið á okkur. Á dögunum var samþykkt að starfsmenn Íslandspósts fengju sömu hækkun og samið var um milli SA og ASÍ, eða 15 þúsund krónur á mánuði. Íslandspóstur hefur verið í svipaðri stöðu og þessir lágmarkstaxtar sem SA var að hækka og er nú verið að hækka þá þannig að þeir séu svipaðir lágmarkstöxtunum sem eru í gildi hjá SA, segir Hannes um þær hækkanir. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, segir mikilvægt að stéttarfélög taki þátt í að ná þeim markmiðum sem sett voru með samkomulaginu en stuðli ekki að verðbólgu með því að krefjast sömu hækkana. Það er alveg ljóst að ef allir vilja fá fimmtán þúsund kallinn, án tillits til þess sem þeir hafa nú, þá mistekst þessi aðgerð. Ef þetta á að takast þá verða allir að taka þátt. Það geta ekki allir fengið þennan fimmtán þúsund kall, segir Ingibjörg.
Innlent Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Fleiri fréttir Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ Sjá meira