Erlent

Ástandið enn eldfimt ári eftir óeirðirnar

Ljósmyndasýning í Seine-Saint-Denis í úthverfi Parísar þar sem reynt er að breyta staðalímynd unga fólksins í úthverfunum.
Ljósmyndasýning í Seine-Saint-Denis í úthverfi Parísar þar sem reynt er að breyta staðalímynd unga fólksins í úthverfunum. MYND/AP

Upplýsingaþjónusta frönsku lögreglunnar, Renseignements Généraux, telur ástandið enn eldfimt í úthverfum Parísar sem loguðu í óeirðum fyrir ári síðan. Í skýrslu sem franska blaðið Le Figaro vitnar í kemur fram að sú óánægja sem kynti undir bílabrennum og öðrum skemmdarverkum sé enn til staðar.

Les Yvelines í vesturhluta Parísar er að mati skýrsluhöfunda það svæði sem þarf að hafa hvað mestar gætur á. Þeir segja að þeir þættir sem orsaki ofbeldi í borginni hafi verið þar í hámarki síðan í apríl. Einnig er nefnt hverfið Seine-Saint-Denis, þar sem tveir unglingar létust af raflosti þegar þeir földu sig inni í rafmagnstengiskúr á flótta undan lögreglunni þann 25. október 2005. Sá atburður varð kveikjan að ofbeldinu í úthverfunum.

Þar er varað við því að ofbeldi gæti blossað upp á nýjan leik eftir rólegheit í sumar. Einnig óttast skýrsluhöfundar að um skipulagt ofbeldi gæti verið að ræða, öfugt við síðasta ár þegar blossandi reiði rak ungt fólk út á göturnar án nokkurs skipulags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×