Lífið

Bíður spenntur eftir viðbrögðum Íslendinga

ragnar bragason Leikstjóri Barna bíður spenntur eftir viðbrögðum Íslendinga.
ragnar bragason Leikstjóri Barna bíður spenntur eftir viðbrögðum Íslendinga. MYND/HAri

Aðstandendur kvikmyndarinnar Börn skrifuðu hafa skrifað undir samning við breska fyrirtækið The Works International um alheimssölurétt á myndinni. Fyrirtækið er eitt þekktasta sölufyrirtæki í Evrópu og hefur haft puttana í mörgum þekktum myndum á borð við 24 Hour Party People, Bend it Like Beckham og óskarsverðlaunamyndinni No Man"s Land.

Fjögur evrópsk sölufyrirtæki til viðbótar höfðu barist um dreifingarréttinn á kvikmyndinni, þar sem leikarar úr Vesturporti eru í aðalhlutverkum.

"Þetta er stórt fyrirtæki á þessu sviði og hefur dreift mjög stórum kvikmyndum í gegnum tíðina. Helstu myndirnar hafa verið á enskri tungu og það er óvenjulegt að það sé með myndir á erlendum tungumálum," segir Ragnar Bragason, leikstjóri Barna. "Það á eftir að koma í ljós hversu vel þeim gengur að selja hana. En þetta er það gott fyrirtæki því myndir þeirra eru að dreifast mjög vel og ég geri mér vonir um að dreifingin verði góð í framhaldinu," segir hann.

Samningurinn nær aðeins til myndarinnar Börn en síðari hlutinn í tvíleik Ragnars, Fullorðnir, verður tilbúinn á næstunni. Vonast Ragnar til að samstarf hans við The Works haldi áfram þegar Fullorðnir komi út enda fylgist myndirnar að.

Börn verður frumsýnd hér á landi á laugardaginn og segist Ragnar vera kominn með dálítinn fiðring. "Ég er eiginlega spenntari að fá viðbrögð frá íslenskum almenningi heldur en útlendum. Þessar myndir eru fyrst og fremst gerðar fyrir Íslendinga. Þetta eru raunsæjar og dramatískar sögur úr íslenskum hversdagsleika og þessi erlendi áhugi kemur því skemmtilega á óvart."

Börn verður heimsfrumsýnd á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni á Spáni í lok mánaðarins. Eftir það verður myndin sýnd á stærstu kvikmyndahátíð Asíu, Pusan, um miðjan október.

Myndin var sýnd á markaðshátíðinni í Haugasundi á dögunum og fékk þar svo mikla athygli að síminn var rauðglóandi hjá Ragnari í kjölfarið.

Síðari myndin í tvíleiknum, Fullorðnir, verður líklega tilbúin í lok september en ekki hefur verið ákveðið hvenær hún verður frumsýnd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.