Lífið

Forláta fiðlulán

Hulda Jónsdóttir fiðluleikari
Rachel Baron Pine hreifst af fiðluleik Huldu og nú fær hún að láni dýrmæta fiðlu og fiðluboga.
Hulda Jónsdóttir fiðluleikari Rachel Baron Pine hreifst af fiðluleik Huldu og nú fær hún að láni dýrmæta fiðlu og fiðluboga. MYND/Stefán

Fiðluleikaranum Huldu Jónsdóttur hlotnast sá heiður að fá að láni dýrmæta fiðlu og fiðluboga frá styrktarsjóði sem kenndur er við hinn heimsfræga fiðluleikara Rachel Barton Pine. Hulda hóf nám við tónlistardeild Listaháskóla Íslands í haust en hún er aðeins 15 ára gömul og yngsti nemandinn sem hefur hafið nám við skólann allt frá stofnun hans.

Fiðlan verður afhent næstkomandi laugardag við hátíðlega athöfn kl. 14 í sal tónlistardeildar Listaháskólans við Sölvhólsgötu 13. Gregory J. Pine, eiginmaður Rachelar afhendir Huldu fiðluna. Hulda spilar við athöfnina og gefst þá tækifæri til að heyra hana leika á þetta einstaka hljóðfæri.

Þetta er í fyrsta sinn sem sjóðurinn lánar hljóðfæri utan Bandaríkjanna en hann hefur yfir að ráða nokkrum afburða fiðlum og fiðlubogum sem síðan er úthlutað til láns frábærum nemendum sem hafa ekki tök á því enn sem komið er að fjárfesta í góðu hljóðfæri. Fiðlan sem er fengin að láni er smíðuð af ítalska fiðlusmiðnum Vincezzo Sannino um 1920 og fiðluboginn er úr smiðju Victors Fetique.

Rachel Barton Pine hefur komið tvisvar til Íslands til að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún hefur í þessum heimsóknum sýnt íslenskum fiðlunemendum mikinn áhuga og stuðning. Hún hélt námskeið í Listaháskóla Íslands í febrúar síðastliðnum og heyrði þá Huldu leika og hreifst mjög af hæfileikum hennar. Hulda skuldbindur sig á móti til þess að koma til Chigago tvisvar á ári og halda tónleika á vegum stofnunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.