Tíguleg uppgjöf fyrir efninu 20. september 2006 14:30 Gafst tígulega upp fyrir efniviði stúku Hilters. MYND/Heiða
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson hefur tilkynnt með formlegum hætti að verki hans sem kennt er við stúku Hitlers sé lokið og hann muni ekki, eins og lýst hafði verið yfir, "eiga við né endurbyggja" verkið frekar. Leifar af leikhússtúku Adolfs Hitlers sem reist var í Admirals Palast leikhúsinu í Berlin árið 1941 voru fluttar í húsakynni Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi þar sem Ragnar hugðist fremja gjörning í tengslum við rústirnar en hann vinnur iðulega með sína eigin nærveru í verkum sínum. "Nú þegar komið er að því að hefja þennan gjörning hefur efnið yfirtekið upphaflega áætlun mína," segir í yfirlýsingu listamannsins, sem líkti sigraðri stúkunni við verkið "Skipbrot vonar" eftir Caspar David Friedrich. "Efnið sem er í þessu verki er það þungt og merkingarhlaðið að verkið sjálft hefur borið listamanninn Ragnar Kjartansson ofurliði. Ég gefst upp fyrir efninu og andanum í þessu verki." "Þetta er tignarleg uppgjöf," útskýrði Ragnar í viðtali og áréttaði einig að hann hafi áður upplifað þessa kennd. "Það er algengt að verki sé lokið fyrr en maður heldur." Ragnar órar ekki fyrir hvort aðrir gestir Hafnarhússins upplifi verkið á líkan hátt en hann segir það nú fullkomnað. Aðspurður um hvenær hann skynjaði að verkinu væri lokið segist Ragnar ekki geta svarað því. Ragnar kveðst munu halda sínu striki, í bígerð er sýning í London og um næstu helgi mun hann fremja gjörning í tengslum við afhendingu Sjónlistarorðunnar ásamt Ásdísi Sif Gunnarsdóttur en þeim viðburði verður sjónvarpað beint frá Akureyri næstkomandi föstudag. "Ég tek líka þátt í norður-evrópska tvíæringingnum Momentum en þar er ég með verk sem heitir Scandinavian Pain," útskýrir Ragnar og segir það verk til heiðurs svæðisbundnum tilfinningum sem skynja má í verkum Strindbergs, Ibsens og skandinavískri black-metal tónlist. Ragnar finnur bældri dramatík Skandinava heimili í hlöðu við norskan fjörð þar sem leikið var tónverk sem samið var í félagi við Ólaf Björn Ólafsson en Ragnar hóf einnig upp raust sína og söng í hlöðukjallaranum á meðan á gjörningnum stóð. Stúka Hitlers verður áfram til sýnis í Hafnarhúsinu en verkið er hluti samsýningarinnar Pakkhúss postulanna sem stendur til 22. október.
Menning Mest lesið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Voru í sjötta sæti í undankeppninni Lífið Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Lífið Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Lífið Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Fleiri fréttir Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Sjá meira