Oprah Winfrey í Hvíta húsið 20. september 2006 15:00 Warren Beatty Var kominn ansi nálægt því að bjóða sig fram til starfsins í Hvíta húsinu en hætti við á síðustu stundu.
Oprah Winfrey sem forseti? Kannski fjarlægur möguleiki en þó ekki. Reynsla af afþreyingariðnaðinum er ekki talin vera löstur á þeim sem vilja bjóða sig fram til forsetaembættis í Bandaríkjunum. Ronald Reagan var jú sem kunnugt er leikari í Hollywood áður en hann sneri sér að stjórnmálunum og Arnold Schwarzenegger var vanari því að sprengja upp vélmenni úr framtíðinni en að stjórna Kaliforníu. Nú er á kreiki orðrómur umað sjónvarpskonan Oprah Winfrey ætli að blanda sér í slaginn þar vestra þegar þjóðin kýs sér næsta forseta. George W. Bush er á sínu síðasta kjörtímabili og ef marka má skoðanakannanir má telja líklegt að demókrati verði í Hvíta húsinu næst. Þeldökkir kjósendur eru ennfremur orðnir langþreyttir á því að sjá hvíta miðaldra karlmenn stjórna landinu og vilja fá svartan forseta næst sem standi vörð um réttindi þeirra. Fjaðrafokið hófst þegar viðskiptamaðurinn Patrick Crowe tilkynnti um bók sína, Oprah for President: Run Oprah Run. Sjónvarpskonan og talsmenn hennar hafa vísað þessu öllu á bug og krafist þess að hætt verði við bókina og vefsíðu tengda henni með þeim formerkjum að þessi málatilbúnaður gæti verið meiðandi fyrir orðspor Opruh og frama hennar. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum velta hins vegar vöngum yfir þessum viðbrögðum sjónvarpskonunnar og telja þau vera hálf fáranleg. "Ef Oprah myndi lýsa því yfir að ég ætti að bjóða mig fram til forseta Bandaríkjanna ætti ég þá að hóta henni lögsókn?" spyr höfundur bókarinnar í viðtali við New York Post.
Menning Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira