Zidane skyggði á Pitt 18. september 2006 06:00 Zidane hefur lítið viljað láta ná í sig eftir atvikið á úrslitaleik HM í knattspyrnu.
Sigurganga myndarinnar Zidane: Andlit 21. aldarinnar heldur áfram en hún gerði góða ferð á Toronto-kvikmyndahátíðina nýverið. Sigurjón Sighvatsson framleiðir kvikmyndina og þegar Fréttablaðið náði tali af honum var hann staddur í Kaupmannahöfn á leiðinni heim til Los Angeles. Zidane var sýnd í Feneyjum fyrir skömmu þar sem hún keppti um Gucci-verðlaunin en tapaði naumlega fyrir Nick Cave og mynd hans The Proposition, segir Sigurjón. Síðan var hún sýnd í Toronto nýlega þar sem myndin sló gjörsamlega í gegn, bætir Sigurjón við en eitt stærsta blað Kanada, Globe and Mail, birti lofsamlega dóma um kvikmyndina og sagði þetta vera bestu íþróttamynd allra tíma. Þessi dómur hafði gríðarlegt vægi og umfjöllun um myndina var á forsíðunni á íþróttadálki blaðsins, segir framleiðandinn. Kvikmyndahátíðin í Toronto er ein stærsta söluhátíð kvikmyndaiðnaðarins og ganga myndirnar kaupum og sölum á hverju götuhorni. Fjöldi kvikmyndastjarna leggur leið sína til borgarinnar en þeirra stærst var vafalítið leikarinn Brad Pitt sem kom þangað til að kynna sína nýjustu mynd, Babel. Globe and Mail sagði reyndar að Pitt væri ekki stærsta stjarnan á hátíðinni heldur Zidane á hvíta tjaldinu, segir Sigurjón og hlær. Brad Pitt Mætti til Toronto til að kynna kvikmynd sína Babel en féll í skuggann af sjálfum Zidane. Myndin fékk mikla athygli dreifingaraðila þótt framleiðandinn viðurkenni að hún hafi selst nokkuð hægt til að byrja með. Okkur tókst loksins að selja myndina til Þýskalands og Ítalíu, segir Sigurjón og bætir jafnframt við að hann hafi búist við meiri áhuga frá Suður-Ameríku þar sem knattspyrnan er nánast trúarbrögð. Eftir velgengnina í Toronto fór hins vegar að bera á eftirspurn eftir myndinni þar, bætir Sigurjón við og lætur þess jafnframt getið að bandarískir aðilar hafi einnig verið áhugasamir um að kaupa myndina sem eru mikil gleðitíðindi fyrir Sigurjón enda fótboltinn ekki hátt skrifaður þar vestra. Sigurjón Sighvatsson Er ánægður með viðbrögðin við kvikmyndinni þótt salan á henni hafi farið hægt af stað. Leikstjórar Zidane-myndarinnar hafa hug á því að gera aðra mynd um knattspyrnu og þá frá sjónarhóli áhorfandans og ætlar Sigurjón einnig að framleiða þá mynd. Þá er ég að vinna í kvikmynd með Kathryn Bigelow sem heitir Devil in the White City og er um einn fyrsta raðmorðingja Bandaríkjanna, útskýrir hann en samningar hafa náðst við Óskarsverðlaunahafann Adrien Brody um að taka aðalhlutverkið að sér. Einnig er verið að leggja drög að endurgerð norsku myndarinnar Elling sem Jay Roach ætlar að leikstýra, segir Sigurjón.
Menning Mest lesið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Kominn á toppinn Lífið Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlist Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Lífið samstarf Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Lífið samstarf Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Fleiri fréttir Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Sjá meira