Með ágætiseinkunn frá Harvard 18. september 2006 06:00 Eiríkur Jónsson.Hreykir sér ekki hátt þrátt fyrir glæsilegan árangur. MYND/Hrönn „
Mér gekk svo sem ágætlega,“ játar Eiríkur Jónsson lögmaður með semingi, spurður hvernig honum hafi gengið í framhaldsnámi í lögfræði við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Þaðan sneri hann aftur heim í sumar eftir ársdvöl, reynslunni ríkari og með ágætiseinkunn í farteskinu. „Það er reyndar engin formleg lokaeinkunn gefin fyrir námið í heild,“ áréttar hann. „En ef einkunnir í öllum námskeiðunum eru lagðar saman og deilt í með fjölda þeirra virðist meðaleinkunnin hafa hljóðað upp á A.“ Eiríkur hreykir sér þó ekki hátt og tekur þessum glæsilega árangri við einn virtasta háskóla heims með hógværð. Námið laut einkum að mannréttindum og lokaverkefnið fjallaði um tjáningarfrelsið en meðal annarra verkefna hans fjallaði eitt um leiðtogafund Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjov í Reykjavík árið 1986 og möguleika Íslands til að verða frekari vettvangur alþjóðlegra samningaviðræðna. Eiríkur lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og starfaði sem lögmaður í þrjú ár, þar til í fyrra þegar hann sótti um – og fékk – styrk sem kenndur er við Frank Boas. „Þessi styrkur var ansi ríflegur og án hans hefði ég sjálfsagt ekki átt kost á náminu við Harvard. Skólagjöldin þarna úti eru jú býsna drjúg,“ segir Eiríkur sem starfar nú hjá lögfræðistofunni Landslög auk þess að kenna lögfræði við Háskóla Íslands.
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira