Stafsetningarorðabókin rauk á toppinn 10. september 2006 11:00 Egill Örn Jóhannsson lét prenta ársskammt af Stafsetningarorðabókinni en sú prentun er að verða þrotin.
Réttritun er Íslendingum greinilega enn mikið hjartans mál en nýútkomin Stafsetningarorðabók rauk beint í efsta sæti heildarlista mest seldu bóka síðustu viku og hafði nokkra yfirburði á toppnum. "Fyrsta prentun er nánast á þrotum og þær eru fáar útgáfubækur okkar sem hafa selst jafn hratt á fyrstu dögunum og Stafsetningarorðabókin," segir Egill Örn Jóhannsson, útgáfustjóri JPV útgáfu. "Við stækkuðum samt fyrsta upplagið og gerðum ráð fyrir að þessi fyrsta prentun myndi endast okkur í að minnsta kosti ár en hún kláraðist á tíu dögum." Egill segir að þeim hjá JPV hafi verið ljóst að þörfin fyrir bók af þessu tagi væri mikil en þessar góðu viðtökur hafi komið þeim í opna skjöldu. "Gagnið sem má hafa af bókinni er samt svo margþætt að hún höfðar til miklu fleiri en bara námsfólks þar sem allir sem fást við og nota íslenskt mál hafa not fyrir hana." Stafsetningarorðabókin er mikið verk, rúmlega 700 síður og inniheldur um 65.000 uppflettiorð. "Íslensk málnefnd hefur unnið að þessu verki árum saman og bókin er hin opinbera réttritunarorðabók íslenskrar tungu." Önnur prentun Stafsetningarorðabókarinnar er væntanleg um mánaðamótin en þá verður ársskammturinn sem búið var að prenta væntanlega uppurinn.
Menning Mest lesið Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Lífið „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Lífið Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Lífið Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið Lífið Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Lífið Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Bíó og sjónvarp Fagurkeri selur miðbæjarperlu Lífið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Lífið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Lífið Fleiri fréttir Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Sjá meira