Fengu toppeinkunn í Svíþjóð 10. september 2006 10:15 Fengu mikið hrós. Margrét og Nonni fengu góða umfjöllun í Extrabladet í Svíþjóð.
Margrét Jónasdóttir, förðunarfræðingur og Nonni Quest, hárgreiðslumaður gerðu góða ferð til Svíþjóðar á dögunum til að taka þátt í stórri sýningu í tilefni af tíu ára afmæli Make up Store, sem er mjög þekkt og stórt snyrtivörumerki í Skandinavíu. Mér var boðið að taka þátt í þessarri sýningu af því ég er að fara að opna fyrstu Make up Store verslunina hér á Íslandi síðar í mánuðinum, segir Margrét, sem fékk Nonna, frænda sinn til þess að fara með sér og sjá um hárgreiðsluna á fyrirsætunni sem hún farðaði. Þetta var mjög stór sýning og það mættu yfir 2000 manns til að horfa á hana en baksviðs voru um 900 manns sem unnu við sýninguna. Sýningarpallurinn var 60 metra langur og það var alveg ótrúleg tilfinning að þurfa að ganga eftir honum öllum með fyrirsætunum í lok sýningarinnar, fyrir framan 2000 manns og helling af ljósmyndurum, segir Margrét. Nonni bætir því við að hann hafi aldrei farið á svo vel undirbúna sýningu. Þarna kom vel í ljós hversu skipulagðir Svíarnir eru, segir hann og gefur þeim góða einkunn fyrir. Gott teymi Margrét og Nonni eru systkinabörn og vinna vel saman en hún er förðunarfræðingur og hann er hárgreiðslumaður. Í sýningunni voru tuttugu mismunandi þemu og má þar nefna postulínsdúkkuþema, englaþema og Abbaþema, auk þess sem ýmsir mismunandi menningarheimar voru teknir fyrir. Við völdum okkur að vinna með þema, sem átti að sýna japanska framtíðarsýn og það gekk alveg rosalega vel enda fengum við mikið hrós fyrir módelið okkar, segir Margrét ánægð. Margrét og Nonni fengu mikla viðurkenningu fyrir störf sín þegar dönsk blaðakona valdi þau til þess að farða hana og greiða á sama hátt og fyrirsætuna þeirra á sýningunni. Þessi blaðakona setur sig í ýmis hlutverk og var þarna að setja sig í spor fyrirsætu. Hún hafði sungið með Madonnu vikuna áður og eldað með Jamie Oliver þar á undan. Síðan skrifar hún um reynsluna og gefur einkunnir, segir Margrét. Blaðakonan er sögð gríðarlega dómhörð í einkunnagjöfum sínum sem sést meðal annars á því að hún gefur einkunnir í býflugum, frá einni upp í fimm. Hún var samt mjög hrifin af að vinna með Margréti og Nonna enda fengu þau fullt hús býflugna frá henni. Þá hafði hún fögur orð um þau í grein sinni og kallar Margréti íslenska súpersminku og hælir henni á hvert reipi. Þetta var rosalega skemmtileg upplifun og það kom okkur skemmtilega á óvart að vera valin í þetta verkefni, segir Nonni og Margrét samsinnir því.
Menning Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Fleiri fréttir Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Sjá meira