Bíður spenntur eftir viðbrögðum Íslendinga 7. september 2006 10:00 ragnar bragason Leikstjóri Barna bíður spenntur eftir viðbrögðum Íslendinga. MYND/HAri
Aðstandendur kvikmyndarinnar Börn skrifuðu hafa skrifað undir samning við breska fyrirtækið The Works International um alheimssölurétt á myndinni. Fyrirtækið er eitt þekktasta sölufyrirtæki í Evrópu og hefur haft puttana í mörgum þekktum myndum á borð við 24 Hour Party People, Bend it Like Beckham og óskarsverðlaunamyndinni No Man"s Land. Fjögur evrópsk sölufyrirtæki til viðbótar höfðu barist um dreifingarréttinn á kvikmyndinni, þar sem leikarar úr Vesturporti eru í aðalhlutverkum. "Þetta er stórt fyrirtæki á þessu sviði og hefur dreift mjög stórum kvikmyndum í gegnum tíðina. Helstu myndirnar hafa verið á enskri tungu og það er óvenjulegt að það sé með myndir á erlendum tungumálum," segir Ragnar Bragason, leikstjóri Barna. "Það á eftir að koma í ljós hversu vel þeim gengur að selja hana. En þetta er það gott fyrirtæki því myndir þeirra eru að dreifast mjög vel og ég geri mér vonir um að dreifingin verði góð í framhaldinu," segir hann. Samningurinn nær aðeins til myndarinnar Börn en síðari hlutinn í tvíleik Ragnars, Fullorðnir, verður tilbúinn á næstunni. Vonast Ragnar til að samstarf hans við The Works haldi áfram þegar Fullorðnir komi út enda fylgist myndirnar að. Börn verður frumsýnd hér á landi á laugardaginn og segist Ragnar vera kominn með dálítinn fiðring. "Ég er eiginlega spenntari að fá viðbrögð frá íslenskum almenningi heldur en útlendum. Þessar myndir eru fyrst og fremst gerðar fyrir Íslendinga. Þetta eru raunsæjar og dramatískar sögur úr íslenskum hversdagsleika og þessi erlendi áhugi kemur því skemmtilega á óvart." Börn verður heimsfrumsýnd á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni á Spáni í lok mánaðarins. Eftir það verður myndin sýnd á stærstu kvikmyndahátíð Asíu, Pusan, um miðjan október. Myndin var sýnd á markaðshátíðinni í Haugasundi á dögunum og fékk þar svo mikla athygli að síminn var rauðglóandi hjá Ragnari í kjölfarið. Síðari myndin í tvíleiknum, Fullorðnir, verður líklega tilbúin í lok september en ekki hefur verið ákveðið hvenær hún verður frumsýnd.
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Lífið samstarf Fleiri fréttir Vill vera sú fyrirmynd sem hún hefði þurft Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira