Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin 7. september 2006 18:00 Forlagið Nýhil færir enn út kvíarnar Útgáfuhreyfingin hefur að mestu einbeitt sér að ljóðum en nú er von á tveimur skáldsögum. Fyrsta upplestrarkvöld vetrins verður haldið í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld MYND/Hörður
Stórtíðindi berast úr herbúðum útgáfuhreyfingarinnar Nýhil sem blæs til upplestrarkvölds í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Þór Steinarsson, forvígismaður kynningarmála félagsins, segir þar von á stórkostlegri upplifun sem enginn megi missa af. Höfundar þeirra sjö titla sem komið hafa út hjá forlaginu það sem af er ári munu lesa úr verkum sínum, auk þess sem haust- og vetrarverk efni hópsins verða kynnt. "Í kvöld lesa skáldin sem eiga bækur í seinni seríu Norrænna bókmennta en það eru Ófeigur Sigurðsson, Kristín Eiríksdóttir, Þórdís Björnsdóttir, Valur Brynjar Antonsson og Steinar Bragi," segir Þór og bætir við að Þórdís lesi einnig ásamt skáldinu Jesse Ball úr nýútkominni bók þeirra, Veru & Linus. Rithöfundurinn Þorsteinn Guðmundsson mun síðan einnig mæta á svæðið og lesa úr nýútkominni ljóðabók sinni Barkakýli úr tré en milli orðhagra skáldanna mun söngkonan Lay Low létta lund gesta. Þór útskýrir að Nýhil-hreyfingin sé síst að leggjast í haustdvala eða kröm. "Nýhil er bara vaxandi - í hugum okkar og hjörtum þjóðarinnar," segir hann, " og það eru stórtíðindi á leiðinni." Hann útskýrir að nú sé von á tveimur skáldsögum frá forlaginu - frumburði skáldsins Bjarna Klemens sem hefur komið fram á mörgum ljóðakvölda hópsins og annars vel þekkst Nýhilskálds, Hauks Más Helgasonar. "Það hefur alltaf verið stefna okkar að gefa út vandaðan skáldskap. Þótt við höfum einblínt á ljóðið hefur aldrei verið útilokað að gefa út skáldsögur líka. Reyndar er þetta ekki alveg nýtt fyrir okkur því á síðasta ári gáfum við út skáldsögu Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar, úfin, strokin," áréttar Þór. Fleira kann líka að vera í pípunum hjá Nýhil enda útskýrir Þór að forlagið haldi sínum dyrum galopnum. "Ef við fáum eitthvað í hendurnar er það sannarlega tekið til skoðunar en það er þó langt því frá að það leynist stórkostleg handrit að bókum á hverju strái. ekki síst þegar kröfurnar eru miklar," segir hann. Í vetur verður ennfremur stefnt að líflegu og marghátta menningarstarfi á vegum Nýhils og er þetta því vart einasta upplestrarkvöld vetrarins. Forlagið á nú einnig innanbúðarmenn í nýjum húsakynnum Smekkleysu við Klapparstíg þar sem það rekur ljóðabókabúð sem að sögn Þórs dafnar vel. "Ljóðasamfélagið rúmast samt ekki innan fjögurra veggja," segir Þór að lokum, "það á heima í huga og hjarta okkar allra". Upplestrarkvöldið hefst kl. 20.30 í kvöld en húsið opnar hálftíma fyrr.
Menning Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira