Fræðsla og faldir fjársjóðir 7. september 2006 13:30 Ólöf Kristín Sigurðardóttir Öll fjölskyldan getur fræðst um myndlist hjá Listasafni Reykjavíkur. MYND/GVA
Fræðslustarf Listasafns Reykjavíkur verður eflt í vetur en þar er stefnt að aukinni fræðslu fyrir alla aldurshópa. Ólöf Kristín Sigurðardóttir, deildarstjóri fræðsludeildar listasafnsins, útskýrir að fræðslustarfið sé veigamikill hluti af starfsemi Listasafns Reykjavíkur en í vetur verður þeim hluta gert enn hærra undir höfði. ¿Við höfum nýlokið við að senda efni í skólana til kynningar fyrir kennara en á milli 10 og 12 þúsund nemendur heimsækja safnið á hverju ári. Við erum líka sífellt að reyna að auka þjónustu við almenna safngesti.¿ Listasafn Reykjavíkur starfar í þremur húsum en núverandi stefna safnsins er að aðgreina þau með skýrari hætti en áður. "Nú stendur yfir sýningarröð á Kjarvalsstöðum sem ætluð er yngstu kynslóðinni. Í norðursal hússins eru sýningar á íslenskri myndlist þar sem allt umhverfi er gert aðgengilegt börnum," segir Ólöf Kristín og útskýrir að þrisvar verði skipt um verk þar fram til áramóta. "Þessi sýning er sett upp í tengslum við bókina Skoðum myndlist sem kom út hjá Máli og menningu í vor en sýningunni hefur verið mjög vel tekið. Á sunnudögum bjóðum við upp á sérstaka leiðsögn eða fjölskyldustund á sýningunni kl. 14 þar sem safnakennari leiðir umræðu um verkin og hjálpar til við að opna þann heim sem þar er að finna." Ólöf bendir á að sýningin á Kjarvalsstöðum sé fremur hugsuð sem fjölskyldusýning en fyrir hópa. Safnið hefur tekið á móti hópnum frá yngstu bekkjum grunnskólanna og leikskólum borgarinnar sem hafa notið sýningarinnar. "Það er ákveðin þörf fyrir afþreyingu fyrir fjölskyldurnar inni á söfnunum - ef krökkunum leiðist þá leiðist öllum. Við reynum að koma til móts við þær þarfir, til dæmis með þessari sýningu." Ólöf bendir á að í Ásmundarsafni hafi safnið líka leitast við að vekja forvitnilegar samræður um myndlist en í sýningarskrá sem fylgir sýningunni eru spurningar sem foreldrar geta nýtt sér sem útgangspunkta í samræðum við yngri gesti hennar. Önnur nýbreytni sem Listasafnið hefur boðið upp á í ár er leiðsögn fyrir ferðamenn á ensku. Áður fyrr var aðeins hægt að panta slíka þjónustu en nú er boðið upp á ókeypis leiðsögn á Kjarvalsstöðum kl. 15 á fimmtudögum. "Þá er áherslan yfirleitt á íslenska myndlist í eldri kantinum," segir Ólöf og bætir við að erlendir gestir séu iðulega mjög forvitnir um íslenska list. Boðið er upp á leiðsögn fyrir almenna safngesti bæði í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og á Kjarvalsstöðum kl. 15 á sunnudögum en Ólöf bendir á að í tengslum við sýninguna Pakkhús postulanna sem nýlega var opnuð þar séu einnig hádegisleiðsagnir í boði fjóra föstudaga á meðan á sýningunni stendur. Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni taka líka virkan þátt í þessum leiðsögnum og ennfremur verður boðið upp á gjörninga í húsinu auk málþings um sýninguna þann 7. október næstkomandi. Einn falinn fjársjóður leynist líka í Hafnarhúsinu en það er bókasafn hússins. "Bókasafnið hefur byggst upp í gegnum árin en þar er að finna bækur sem keyptar hafa verið vegna einstaka sýninga auk bóka um íslenska listasögu. Við erum líka í samstarfi við erlend söfn og fáum nýjustu sýningarskrár sendar hingað. Safnið stendur öllum opið og þar er vinnuaðstaða. Við setjum fram bækur sem tengjast sýningum safnsins hverju sinni, bæði hér í Hafnarhúsinu og á Kjarvalsstöðum og reynum þannig að gera ítarefni um þær sem aðgengilegast." Verið er að vinna að því að skrá bækurnar inn í kerfi Borgarbókasafns Reykjavíkur svo hægt sé að fá þær með millisafnaláni. Nú hafa líka verið settar upp sérstakar bókahillur vegna sýningarinnar Pakkhús postulanna þar sem hver listamaður hefur sína hillu með bókum sem haft hafa áhrif á viðkomandi en þar geta gestir glöggvað sig á störfum þeirra. "Hér er líka er búið að koma upp lessvæði þar sem fólk getur setið í hring - eins og í heitum potti - og skeggrætt listina ef það vill." Nánari upplýsingar um starf Listasafns Reykjavíkur og fræðsludeildina má finna á heimasíðunni listasafnreykjavikur.is.
Menning Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið Fleiri fréttir Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Sjá meira