Ánægjulegt sumar í miðasölu 7. september 2006 09:00 Sigurvegari sumarsins Jack Sparrow og félagar eru ótvíræðir sigurvegara sumarsins en framhaldsmyndin um sjóræningjnana á Karabíska hafinu er í sjöunda sæti yfir mest sóttu myndirnar.
Kvikmyndaverin héldu niðri í sér andanum þegar sumarið gekk í garð. Í fyrra urðu þau fyrir stórum og óþægilegum skellum en virðast hafa veðjað á rétta hesta að þessu sinni. Kvikmyndafyrirtækin í Englaborginni ráða sér vart fyrir kæti. Þrátt fyrir bölsýnisspár um að síaukið niðurhal af netinu og þreyttar ofurstjörnur væru að ganga af sumarsmellunum dauðum reyndist þetta votviðrasama sumar hið besta fyrir kvikmyndaiðnaðinn í Bandaríkjunum. Gróðinn af miðasölu jókst um rúm sex prósent frá því í fyrra og munar þar mestu um framhaldsmyndina Pirates of the Caribbean: Dead Mans Chest en aðsóknin á hana hefur verið vægast sagt lygileg.Frábær byrjunVonbrigðin Þriðja myndin í Mission Impossible flokknum reyndist vera vonbrigði í miðasölu þrátt fyrir að gagnrýnendur hefðu verið ákaflega ánægðir.Sumarið í ár jafnast næstum á við þá miklu velgengni sem var í gangi fyrir tveimur árum. Markaðssérfræðingar þar vestra eru sammála um að ein megin ástæðan sé sú að ekki hafi borið jafn mikið á neikvæðri umfjöllun um komandi kvikmyndir í ár líkt og í fyrra þegar fjölmiðlar skemmtu sér konunglega yfir því að spá hvaða stórmynd myndi koma verst út. Ef hvert sumar væri eins og þetta væri allt í himnalagi, sagði Paul Dergarabedian, framkvæmdarstjóri Exhibitior Relations. Jeff Blake, stjórnarmaður hjá Sony, sagði að kvikmyndahúsagestir hefðu ætíð fundið eitthvað við sitt hæfi í hverri viku. Í hverri einustu viku voru frumsýndar ein til tvær myndir sem fólk vildi sjá en slíkt var ekki í gangi síðasta sumar, sagði Blake við blaðamann AP fréttastofunnar en Sony dreifði smellum á borð við Da Vinci Code og Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby með Will Ferrell. Í fyrra var það þannig að fólk hugsaði með sjálfu sér; við skulum ekki fara í bíó núna, bætti Blake við. Gullnáman hjá DisneyStóðst væntingar Superman Returns stóð undir væntingum en ekkert meir en það. Næsta mynd gæti hins vegar slegið öll met.Sigurvegari sumarsins er án nokkurs vafa hið fornfræga veldi Disney. Sjóræningjamyndin um Jack Sparrow og ævintýri has er þegar komin í sjöunda sætið yfir mest sóttu myndir allra tíma og ekki sakaði að teiknimyndin Cars frá Pixar gerði góða hluti í miðasölu. Hvorugar þessara mynd fengu neina glimrandi dóma en áhorfendur virtust falla fyrir þeim. Á síðasta ári var svo mikil neikvæðni í gangi hjá bæði fjölmiðlum og almenningi. Sumarið fékk glimrandi byrjun og okkur tókst að halda henni við, sagði Chuck Viane hjá dreifingardeild Disney - fyrirtækinu. Óvænt vonbrigðiÞrátt fyrir að bjartsýni og gleði einkenni kvikmyndaiðnaðinn að loknu þessu sumri voru ekki allri sem gengu sælir og glaðir frá borði. Paramount - kvikmyndaverið var til að mynda allt annað en sátt við útkomu Mission Impossible III sem búist hafði verið við að myndi slá í gegn. Tom Cruise trekkti hins vegar ekki jafn vel að og oft áður og í kjölfarið ákvað forstjóri Paramount,Summer Redstone, að slíta fjórtán ára samstarfi sínu við Cruise. Superman Returns tókst ekki að ná inn þeim upphæðum sem búist hafði verið við. Stóðst eingöngu þær kröfur sem til hennar voru gerðar en hafði verið við meiru af henni þar sem bæði X - Men og Köngulóarmaðurinn höfðu sýnt og sannað að kvikmyndahúsagestir vildu gjarnan sjá ofurhetjurnar á hvíta tjaldinu. Fáar kvikmyndir sem voru frumsýndar í sumar urðu fyrir einhverjum verulegum skelli. Garfield: Tale of two Kitties og nýjasta mynd Umu Thurman, My Super Ex - Girlfriend gerðu þó engan veginn þá hluti sem búist hafði verið við og Miami Vice, Poseidon og Lady in the Water tókst að klöngrast í gegnum sumarið án þess að færa peningamönnunum einhverja sérstaka gleði en teljast þó hafa gert sitt til að halda þeim góðum.
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira