Lífið

Forskot á sæluna með Tim Sweeney

Jón Atli Helgason 
Mun hita upp fyrir þennan vinsæla plötusnúð.
Jón Atli Helgason Mun hita upp fyrir þennan vinsæla plötusnúð.

Á laugardaginn er hinn virti plötusnúður Tim Sweeney væntanlegur til landsins til að þeyta skífum í Bláa Lóninu og á Barnum. Plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson stendur fyrir komu hans hingað og segir hann Tim vera með betri plötusnúðum í heiminum í dag.

"Tim er frá útgáfufyrirtækinu DFA records í New York sem er eitt af virtari fyrirtækjum í bransanum í dag og gefa meðal annars út LCD Soundsystem og Hot Chip," segir Margeir en Sweeney mun spila í Bláa Lóninu klukkan 15 um daginn í tilefni af útgáfu "Blue Lagoon Soundtrack" sem eimitt er úr smíðju Margeirs. Eftir að fólk er búið að njóta tónlistarinnar svamlandi um í lóninu heldur partýið áfram í karnival stemmingu við Barinn á Klapparstíg klukkan 21.

"Tim var búin að bóka sig á Airwaves en komst svo ekki vegna anna enda mjög vinsæll plötusnúður sem spilar á hátíðum út um allan heim. Þetta voru einu dagsetningar sem voru lausar hjá honum og hann er mjög spenntur að koma og hlakkar til að sjá land og þjóð. Það má eiginlega segja að við séum að taka forskot á sæluna um helgina," segir Margeir en fast og fljótandi verður í boði fyrir gesti á Barnum á meðan birgðir leyfa.

"Það eru allir hjartanlega velkomnir á báða staði og er þetta eiginlega ómissandi fyrir tónlistarunnendur," segir Margeir og lofar að vera í góðu stuði en hann og Dj Lazer betur þekktur sem hárlæknirinn Jón Atli Helgasson munu hita upp fyrir Tim Sweeney á laugardagskvöldið. -






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.