Klassík í Smáralind 7. september 2006 08:30 Vetrarstarf að hefjast Sinfóníuhljómsveitin tekur landsmenn með trompi og treður upp í Smáralind. MYND/GVA
Vetrarstarfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands var þjófstartað á hér á síðum Fréttablaðsins í gær og eru lesendur beðnir velvirðingar á því, einkum þeir sem mættu upp í verslunarmiðstöðina Smáralind í gær og komu þar að tómum kofanum. Hið rétta er að óvenjulegir upphafstónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar í Smáralind fara fram kl. 17 í dag. Fyrirhuguðum útitónleikum sveitarinnar á Austurvelli var með snarheitum breytt í innitónleika á skjólbetri stað vegna slakra veðurskilyrða það af er vikunnar. Það rignir sjaldnar í Smáralindinni svo dýrmætum hljóðfærum sveitarinnar er borgið og mögulega fá færri kvef en af volki niðri í bæ. Aðalstjórnandi sveitarinnar, Rumon Gamba, mun stýra sveitinni í dag sem leika mun glæsileg verk úr heimi tónbókmenntanna og er þetta því kjörið tækifæri fyrir forvitna tónlistarunnendur að hlýða á frábæran flutning á óvenjulegum tónleikastað. Í Smáralindinni verður leikið eitthvað fyrir alla, gestum gefst til dæmis kostur á að heyra ungverska dansa Brahms og Vínartóna eftir Strauss auk kunnuglegra stefja Jóns Múla Árnasonar, Alfreðs Clausen og Sigvalda Kaldalóns og Hróðmars Sigurbjörnssonar: Á morgun föstudag verður sveitin síðan komin á sinn heimavöll í Háskólabíói en þá mun norska sópransöngkonan Solveig Kringelborn syngja með sveitinni. Kringelborn hefur undanfarin misseri heillað hlustendur með hæfileikum sínum og er hún orðin gríðarlega eftirsótt í óperu- og tónleikasölum heimsins. Túlkun hennar á verkum norrænna skálda hefur verið hampað töluvert og því bíða margir komu hennar með eftirvæntingu. Solveig Kringelborn syngur einnig á sérstökum tónleikum næstkomandi laugardag en tónleikar þeir eru til styrktar verkefninu Lífið kallar sem er samstarfsverkefni FL Group, BUGL og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Verkefnið miðar að því að styrkja fjölskyldur barna og unglinga sem eiga við andlega erfiðleika að etja en verkefnið leggur sérstaka áherslu á að aðstoða sjúklinga og aðstandendur við mótun nýrrar lífssýnar í bráðameðferð og ekki síst að henni lokinni, þar sem lífsgleðin er höfð að leiðarljósi. Nánari upplýsingar um vetrarstarf Sinfóníuhljómsveitar Íslands má finna á heimasíðu þeirra, www.sinfonia.is.
Menning Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira