Lou Ye settur í bann heimafyrir 6. september 2006 13:00 Bannaður Lou Ye hefur verið bannað að gera kvikmyndir í Kína næstu fimm árin en hér er hann ásamt aðalleikurum Summer Palace, þeim Lei Hao og Xiaodong Guo. MYND / Getty Images
Kínverska leikstjóranum Lou Ye hefur verið bannað að gera kvikmynd í fimm ár eftir að hafa sýnt mynd sína Summer Palace án leyfis kínverskra stjórnvalda. Lou Ye mætti með Summer Palace á Cannes-hátíðina þar sem hún keppti um Gullpálmann í júní. Ye hafði ekki fengið leyfi hjá kínverskum yfirvöldum en myndin gerist um það leyti þegar hermenn alþýðulýðveldisins réðust gegn stúdentum á Torgi hins himneska friðar í júní árið 1989 eftir þriggja vikna mótmæli. Ye sagði á Cannes að hann hefði í hyggju að breyta myndinni lítillega svo að hægt væri að sýna myndina í heimalandinu en nú hafa stjórnvöld gert hana upptæka, sem og allan gróða af henni. Framleiðanda myndarinnar, Nai An, hefur einnig verið gert að halda sig frá kvikmyndagerð næstu árin en atburðirnir á Torginu er viðkvæmt mál hjá kínverskum stjórnvöldum sem enn þann dag í dag kjósa að kalla þau "aðgerðir gegn uppreisnarseggjum". Sjálfur hefur Ye sagt að myndin fjalli alls ekki um þessa atburði heldur sé hún fyrst og fremst ástarsaga. Starfsmaður Útvarps-, sjónvarps- og kvikmyndastofnunar Kína staðfesti þessar fréttir við kínversku fréttaveituna Xinhua en vildi ekki tjá sig meira um málið.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira