Myrkraverk Andra Snæs í samstarfi við undirheima 6. september 2006 12:45 andri snær horfir til himins Lofar alvöru stjörnum í Reykjavík að kvöldi 28. september. samsett mynd
Þetta verður opnunaratriði alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Þeir þar gripu hugmyndina á lofti. Og létu verða að veruleika. Til siðs er að hafa stórstjörnur á kvikmmyndahátíðum. Margar skærustu stjörnur í heimi munu birtast borgarbúum þetta kvöld. Alvöru stjörnur, segir Andri Snær Magnason rithöfundur. Hann horfir til himins eins og svo oft áður. Ný styttist í að gamall draumur Andra Snæs verði að veruleika. 28. september frá klukkan 22:00 til 22:30 verður Reykjavík almyrkvuð. Slökkt á öllum ljósum. Andri Snær segir að Hafnfirðingar, Garðbæingar og Mosfellsbæingar muni einnig slökkva og verið er að vinna í Kópavogsbúum. Við erum að reyna að fá alla bæjarstjóra landsins inn í þetta mál, segir Andri. Rithöfundurinn sótti fyrst um það árið 2000 að myrkva borgina en segir að, eins og títt sé um hugmyndir, fleiri hafi fengið þessa sömu flugu í höfuðið. Og nefnir til sögunnar Þorstein Sæmundsson stjörnufræðing og Guðjón Magnússon hjá Orkuveitunni. En nú mun sem sagt slökkna á ljósum borgarinnar og stjörnufræðingur lýsir himninum í beinni útsendingu. Já, það má líklega skrifa þá hugmynd á mig. Aðspurður segist Andri Snær ekki hafa neinar áhyggjur af því að bófar, vandalar og annað illþýði notfæri sér myrkrið til voðaverka. Nei, við erum í samstarfi við undirheimana. Þeir ætla bara að horfa upp í loftið. Þeir vilja ekki eyðileggja þetta. Svo er miklu erfiðara fyrir þá að athafna sig þegar allir eru heima. Miklu betri er til dæmis Verslunarmannahelgi þegar allir eru úr bænum. Andri Snær gefur einnig lítið fyrir það að þetta geti kallað fram myrkfælni meðal þeirra sem viðkvæmir eru. Bendir á að við lifum í landi jarðhræringa og gott sé að menn sjái veröldina eins og hún er ef komi til þess að rafmagnið fari. Þannig eigi almannavarnasjónarmið við í þessu einnig. Ég held að allir sem eiga börn, allir sem hafa verið til, kannist við tilfinninguna að glápa upp í loftið og finna til þess hvað maður er smár. Hollt að minna okkur á samhengið sem við erum í. Út frá þessu glápi eru sprottin trúarbrögð, vísindi ... allt sem maðurinn byggir á. Gaman fyrir okkur sem búum við síbirtu, hér er ljóshjálmur yfir borginni allan veturinn, að geta veitt börnunum okkar aðgang að þessu án þess að fara lengst út í sveit.
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira