Lífið

Sjóðheitir tónleikar

Bloodhound Gang Bandaríska hljómsveitin heldur sína þriðju tónleika hér á landi í kvöld.
Bloodhound Gang Bandaríska hljómsveitin heldur sína þriðju tónleika hér á landi í kvöld.

Hljómsveitirnar Bloodhound Gang, Dr. Mister & Mr. Handsome, XXX Rottweiler og Touch halda tónleika í Laugardalshöll í kvöld.

Hin bandaríska Bloodhound Gang, sem hefur haldið tvenna tónleika hér á landi, hefur átt mörg vinsæl lög í gegnum tíðina. Á meðal þeirra er The Bad Touch sem kom út árið 1999 á plötunni Hooray for Boobies. Textar sveitarinnar hafa jafnan þótt umdeildir, rétt eins og textar bæði XXX Rottweiler og Dr. Mister & Mr. Handsome.

Dr. Mister & Mr. Handsome hafa vakið mikla athygli undanfarið og er búist við þeim sjóðheitum á tónleikunum. . XXX Rottweiler koma sterkir inn eftir að hafa horfið hver í sína áttina til að safna kröftum. Koma þeir væntanlega tvíefldir til baka.

Miðasala á tónleikana fer fram í skor.is í Kringlunni og Smáralind og á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.